Ragnar Gunnlaugsson frá Bakka í Víðidal, sem var eitt sinn formaður Veiðifélags Víðidalsár, hefur árlega tekið sman veiðitölur og statistík eftir hvert sumar, sent okkur hingað á VoV og við höfum unnið margskonar fróðleik uppúr plöggunum. Hér kemur það helsta frá veiðisumrinu 2018 frá Víðidalsá og Fitjá, margt athyglisvert þar á ferð.
Alls veiddust 589 laxar í Víðidalsá og Fitjá. Víðidalsáin sjálf gaf þar af 435 laxa og Fitjá 152. Tveir laxar í bók voru óstaðsettir. Ragnar birtist tölur allt aftur til 2008 og er þetta lakasta sumarið síðan 2012 þegar aðeins 324 laxar voru færðir til bókar, en gott betur, þetta er næst lakasta útkoman á téðu tímabili, frá 2008. Fimm sumur á umræddu tímabili hefur veiðin farið í fjögurra stafa tölur. Þetta telst því fremur lélegt sumar í Víðidalnum.
Mikið var talað um smálaxaleysi í norðlenskum ám á síðasta sumri og má sjá það endurspeglað í meðalbvigt sumarsins sem er 3,9 kg, eða fast að 8 pund. Þó veiddust fleiri smálaxar en stórlaxar sem kemur eflaust til af því að 2017 var ekkert sérlega gott smálaxasumar heldur og því var stórlaxagangan ekki sterk. Alls voru skráðir 214 laxar í bók sem máttu teljast hafa verið 2-3 ár í sjó og þar af 173 á bilinu 75-102 cm, eða um 10 pund og upp í ríflega 21 pund sé miðað við kvarða Veiðimálastofnunarinnar gömlu á þyngd laxa versus lengd. Á sama tíma veiddust 374 smálaxar, þ.e. laxar undir 70 cm. Einn lax fékk ekki þyngdarskráningu.
Alls var 79 prósent aflans sleppt aftur, í fyrra var talan sú hæsta frá 2008, en þá var 83 prósentum gefið líf aftur. Lögboðið er að sleppa öllum laxi yfir 70 cm en þessar tölur sýna að miklu er einnig sleppt af smálaxinum.
Í Víðidalsá veiddust sem sagt 435 laxar. Besti veiðistaðurinn var Harðeyrarstrengur með 56 laxa. Næstur kom Dalsárós með 38 laxa. Kælir var með 32, Nípukotskvarnir með 27, Garðar með 23 og Stekkjarfljót 22 laxa. Aðrir voru með færri fiska. Í Fitjá var Laxapollur drýgstur með 47 laxa. Kerfljót var með 19, Bugur með 17 og Tjarnarfljót með 13 laxa. Aðrir voru með færri fiska.
Silungsveiðin er mikið búbót í Víðidalsá, sérstaklega í slökum laxveiðiárum. Á sérstöku silungasvæði árinnar, sem hefur nú verið lengt talsvert veiddust s.l. sumar 436 sjóbleikjur og 145 urriðar sem mest er sjógenginn fiskur. Á laxasvæðinu veiddust 170 sjóbleikjur og 202 urriðar sem flestir eru sjógengnir. Tölur þessar endurspegla að sjóbleikju hefur fækkað og sjóbirtingur sótt í sig veðið. Ekki rekur VoV minni til að fleiri urriðar en bleikjur hafi veiðst á laxasvæðinu. En þó að lesa megi niðpursveiflu bleikjunnar útúr þessum tölum þá er þetta eigi að síður afar drjúgur meðafli, því bæði urriðinn og bleikjan í Viðidalsá eru vænir stofnar og einn góður Víðidalsmaður hafði eitt sinn á orði við VoV að það væri engu líkara en að það rynni sterar með árvatni árinnar. Þessi silungsveiði er samtals 606 sjóbleikjur og 347 urriðar. Samanlagt 953 silungar










