Veðurfarið að undanförnu speglaðist aftur í aflatölum síðustu viku. Þurrkar og mikil hlýindi eru ekki það besta, ár að verða vatnslitlar og dregur víða úr göngum þó að smálaxinn hafi tekið aðeins við sér fyrir norðan. Nokkrar ár áttu samt góða viku.

Það má sjá eitt og annað í tölunum. Á Suðvesturlandi upp í Borgarfjörð hafa smálaxagöngur verið góðar og veiðin yfirleitt í góðu lagi og víða betri en á sama tíma í fyrra. Nú hefur hins vegar dregið úr göngum og veðurfar verið óhagstætt með hratt minnkandi vatni. Þar var veiðin slök síðustu vikuna. Út á Snæfellsnesi voru göngurnar ekki eins hressar og sama má segja um árnar í Dölunum. Þar segir minnkandi vatn einnig til sín, en þó má vel við una gang mála í Haffjarðará og Straumfjarðará tjaldaði sinni bestu viku til þessa. Norðanlands og Norðaustan hafa árnar í besta falli verið þokkalegar, mun minna af stórlaxi en í fyrra og smálaxinn seinn að skila sér. Hann hefur þó aðeins verið að koma um og eftir síðasta stórstraum, en hversu sterkar göngurnar eru liggur þó ekki fyrir. Á svæðinu eru ár sem eru þó sitt hvoru megin á skalanum, Selá virtist á uppleið, en er í raun mjög nærri sömu veiði og á sama tíma í fyrra og Hofsá dalaði aftur eftir  að hafa átt sína bestu viku, í fyrri viku. Á meðan eru stöku ár nánast ónýtar, t.d. Fnjóská og Svartá, þar rættist ekki úr þó að enn geti það gerst. Þá er ekki hægt að horfa fram hjá stöðu mála í Breiðdalsá. VoV minnist þess varla öll þau ár sem við höfum fylgst með og unnið úr tölum angling.is, að vikuveiði í þekktri og nafntogaðri laxveiðiá sé núll laxar. Á Suðurlandi er þetta rólegt nema í Rangánum. Byrjuðu báðar frekar rólega, sérstaklega þó Eystri Rangá, en báðar hafa sótt verulega í sig veðrið og Ytri Rangá var nú með bestu vikutöluna þó aðeins hafi dalað, og veiðitölur í Eystri Rangá eru nú orðnar flottar og áin fór yfir þúsund laxa múrinn í vikunni. Kíkjum á árnar, hverja fyrir sig og í sviga á eftir hverri vikutölu má sjá hvernig undangengnar vikur gengu.

Ytri Rangá. Enn ein flott vika þar, 594 laxar (717, 668, 332, 205 og 215 laxar). Áin þá komin í 2881 lax en hafði gefið 4664 stykki á sama tíma í fyrra. Er forysta árinnar nú slík að það má eiginlega láta vita strax að hún verður hæst þegar talið verður uppúr kössunum. Ekkert hefur breyst í þeim efnum frá síðustu viku þó vikutalan hafi dalað nokkuð.

Miðfjarðará. Vikuveiðin var mjög góð, 321 lax, sem er í raun magnað miðað við hversu slök skilyrðin hafa verið í seinni tíð, enda er þetta dölun frá fyrri viku, (424, 256, 453, 298, 180 og 101). Magnað hvað áin heldur háum standard þar sem skilyrði hafa ekki verið auðveld og vatn minnkandi.  Fór í 2173 laxa á 10 stangir, en 2666 laxar höfðu komið á land á sama tíma í fyrra.

Þverá/Kjarrá. Vikan gaf 73 laxa (81,74, 237, 345, 248 og 152). Svipað og vikuna á undan. Minnkandi vatn og hitaviðri hafa sett mark sitt á ána. Þetta er slakt með afbrigðum skilyrðana vegna en gaman verður að sjá hvernig áin, og fleiri á Vesturlandi, taka við sér þegar það fer loks að rigna. Alls voru komnir 1466 laxar á land á miðvikudagskvöldið, en á sama tíma í fyrra voru þó komnir 1469 laxar á land þannig að áin er enn yfir veiði sama tíma í fyrra þó að þrjár síðustu vikurnar hafi verið erfiðar. Munurinn er ekki marktækur, þetta er í raun sama og í fyrra. Þverá/Kjarrá er skráð með 14 stangir.

Norðurá. Vikan gaf 53 laxa, (80, 129, 172,219, 184 og 158) Dalar af sömu ástæðum og aðrar á svæðinu.  Norðurá þarf verulega á haustlægð að halda! Mikið af laxi, en tekur ekki. Alls voru á miðvikudaginn komnir 1228 laxar í bók. Í fyrra var sama tala 1039, sem sagt betra nú. Norðurá er skráð hjá angling.is með 12 stangir.

Blanda. Síðasta vika skilaði 145 löxum, (161, 168, 231,143 og 102), heildartalan því komin í 1219 laxa. Þrátt fyrir þokkalegar vikutölur munar afar miklu á sama tíma í fyrra þegar, skv angling.is, voru komnir 2028 laxar á land. Blanda var skráð með 4 stangir framan af á angling.is, en nú er keyrt á öllum 14 stöngum árinnar.

Eystri Rangá. Er enn öll að hressast. Vikan þar gaf nú 419 laxa, sem er það besta til þessa í sumar, (334, 137, 56, 47, 66 og 22). Áin fór í 1091 lax, en sama tala í fyrra var 2481 laxar.

 Langá. Vikan var góð m.t.t. skilyrða og mikið er af laxi. Tala vikunar var 111 laxar, (90,142, 199, 201 og 170 vikurnar á undan) Heildartalan 1074 laxar og var á sama tíma í fyrra 875 laxar. Það stefnir því í betri vertíð þetta sumarið í Langá, haft er fyrir satt að þar sé mikið af fiski og ef að rignir fyrir vertíðarlok gæti orðið mikil og góð veisla. Langá er skráð með tíu stangir.

Haffjarðará. Vikan var nokkuð góð, gaf 104 laxa sem er samt smá niður á við (138, 123, 127,152 og 84). Áin fór í 912 laxa. Á sama tíma í fyrra voru komnir 964 laxar á land. Þetta er því mjög áþekkt og í fyrra og áin er að nálgast fjögurra stafa tölu. Haffjarðará er skráð með 6 stangir.

Grímsá. Hún er enn á góðu róli, 101 lax kom á land, (93, 91,142,128 og 112). Eins og sjá má af vikutölunum að undanförnu þá er þetta jöfn veiði, en Grímsá hefur löngum haldið vatni betur en flestar ár í héraðinu og það skilar sér. Áin er nú komin í 788 laxa en sömu tölu í fyrra vantar en hún var innan við 400 laxa, Grímsá er því einn af sigurvegurunum þetta árið. Grímsá er skráð fyrir 8 stöngum.

Elliðaárnar. Veiðin dalar þarna, enda skilyrði verri og verri. Alls komu 58 laxar á land í vikunni, (70,102, 130, 107 og 110). Þarna er rúm fyrir mikla bragarbót ef að skilyrðin batna. Heildartalan núna 705 laxar en var 549 laxar á sama tíma í fyrra. Elliðaárnar voru með fjórar stangir framan af,en sex stangir að undanförnu.

Laxá á Ásum. Er alveg í lagi og fiskur verið að ganga að undanförnu. Vikan gaf 101 lax, svipað og síðustu viku (98,63, 133, 107, 79 og 31). Áin var í gærkvöldi með 637 laxa, en 439 laxar á sama tíma í fyrra. Laxá er skráð með fjórar stangir.

Selá. Eftir að hafa átt sína bestu viku til þessa, dalaði veiðin aftur. Vikan nú gaf 93 laxa, (135, 123, 110, 95 og 27 í vikunum á undan). Heildartalan nú 618 laxar en voru 600 á sama tíma í fyrra. Þetta er betra, en varla marktækt. Sex stangir í Selá.

Klaus Frimor, Jökla
Klaus Frimor og erlend veiðikona búin að setja í einn í hinni fögru Jöklu fyrir skemmstu…

Laxá í Kjós. Harðlífi í vatnsleysinu eins og svo oft áður því miður, vikan gaf 31 lax, áin á niðurleið og ekki við meiru að búast fyrr en skilyrði batna. Vantar ekki lax í ána, bara vatn og breytingu, (58 laxa (69, 93, 61, 114 og 45) Erfitt tíðarfar að halda veiðinni niðri eins og víðar. Laxá var þá komin í 502 lax, en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 301 lax. Mun betra en í fyrra þrátt fyrir allan bölmóð.

Laxá í Aðaldal. Vikutalan hennar var 57 laxar (70, 57, 146, 71 og 39), nokkrar sveiflur þarna á ferðinni en í heild heldur slakt. Í gær var áin í 501 laxi, en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 818 stykki.

Víðidalsá. Ekki sérlega gott í Víðidalnum. Vikutalan hennar dalar frá fyrri viku, var nú 38 laxar, (72, 57, 85, 82, 76 og 55) Heildartalan hennar nú 482 laxar en var 700 laxar í fyrra. 8 stangir skrifaðar á Víðidalsá.

Vatnsdalsá. Jöfn veiði en róleg. Smálax að láta á sér kræla sem er jákvætt. Vikan gaf  55 laxa, (102, 52, 65, 42, 48 og 34). Áin færðist upp í 424 laxa. Sambærileg tala frá síðasta ári var 525 laxar. Þetta er því hundrað laxa niðursveifla. Sex stanga á.

Laxá í Leirársveit. Veiði er á svipuðu róli og verið hefur. Skilyrði eins og annars staðar hins vegar erfið. Rólegt sem sagt,  vikan með aðeins 31 lax, það slakasta um nokkurt skeið, enda lítið vatn í ánni og fátt til að kynda undir tökur, (47, 80, 64, 61 og 54). Slæm skilyrði að herja á ána og veiðimenn hennar. Heildartalan 365 laxar en voru 253 á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir hremmingar er áin því engu að síður með betri tölu en í fyrra!

Hofsá, Áin er mikið til á sama stað og í fyrra og síðari ár. Öldudalurinn varir og veiðin varla meira en kropp miðað við það sem menn vilja reikna með úr jafn frægri perlu. Vikan skilaði 67 löxum, sem er reyndar næst besta vikan, en vantar mikið uppá samt (93, 46, 59, 40 og 35). Alls þá komnir 340 laxar á 6 stangir, en sama tíma í fyrra hafði 308 löxum verið landað.

Skjálfandafljót. Hér er átt við neðri svæðin, en tölur af svæðunum hafa verið svo stopul til þessa að við höfum ekki haft ána með. Vikutalan hennar nú var 80 laxar sem er glettilega gott og bendir til að smálaxagusa hafi komið í ána síðustu viku. Þar með hafa veiðst 320 laxar á svæðinu. Sambærilega tölu frá síðasta sumri vantar, en við vildum hafa Fljótið með hérna þar sem talan er nokkuð góð og jákvæð.

Hítará. Agaleg vika í Hítará! Vikan gaf 17 laxa og er sú slakasta síðan snemma í sumar þegar lítið var gengið af laxi, (50, 67, 73, 49, 23 og 10).  Skilyrði verulega slök. Með þessu færðist hún upp í 308 laxa, en í fyrra var hún með 532 laxa á sama tíma. Fjórar stangir eru skráðar á Hítará.

Flóka. Þar var aftur slök vika, aðeins 22 laxar,(17,22, 47, 51 og 83). Áin er komin í 300 laxa, en 252 laxar voru komnir á sama tíma í fyrra. Betra, þrátt fyrir dalandi vikuveiði. Þrjár stangir.

Stóra Laxá. Ekki var nú vikan alveg nógu góð austur í Hreppum aðra vikuna í röð, aðeins 23 laxar, (15, 52, 10, 46 og 117). Þarna er sárlega beðið eftir góðrum rigningargusum og með þeim haustgöngunum sem áin er fræg fyrir. Áin þá komin í 295 laxa. Á sömu dagsetningu í fyrra voru komnir 205 laxar á land. Enn státar Stóra því af betri tölu en á sama tíma í fyrra. Tíu stangir.

Laxá í Dölum. Voða rólegt í Dölunum þessa daganna, eins og víðar, og regndansinn stiginn af þunga. Vikan gaf aðeins 47 laxa (38, 84, 33, 56 og 25). Alls því núna 294 laxar, en sama tala í fyrra var 586 laxar. Fjórar stangir í ánni.

Haukadalsá. Miðað við síðasta sumar þá er þetta mjög rólegt í Hauku og vikan var ekki lífleg, aðeins 36 laxar skráðir í bók, (38, 54, 48, 33, 41 og 27)  Áin hefur gefið 293 laxa. Á sama tíma í fyrra voru komnir 678 laxar úr ánni. Fimm stangir.

Jökla. Tók aðeins við sér frá fyrri viku, vikan gaf 60 laxa (35, 50, 50, 18 og 12). Sú gamla aðeins að taka við sér aftur með sína bestu viku þó að þetta séu engar sprengitölur. Alls 225 laxar en í fyrra voru þetta 375 laxar á sama tíma.

Hrútafjarðará. Þrátt fyrir hin döpru skilyrði kom Hrútan inn með sína bestu viku til þessa, 93 laxa, (32,10, 45, 13). Áin þá komin með 205 laxa en var með 260 á sama tíma í fyrra.

Straumfjarðará. Verið frekar dauf hún Strauma og hélt áfram í sama mótinu. Vikan gaf 9 laxa, (25, 44, 51, 16, 42 og 18). Hún er núna með 205 laxa á þrjár stangir en á sama tíma í fyrra hafði veiðst 201 lax. Hún er því þrátt fyrir rólegheitin komin með betri tölu en á sama tíma í fyrra, en munurinn samt augljóslega ekki marktækur,

Þverá í Fljótshlíð. Þar var prýðis vika, alls 63 laxar (74 laxar í fyrri viku, fleiri vikur ekki til staðar á ngling.is). Áin fór þá í 183 laxa en var með 182 á sama tíma í fyrra.

Búðardalsá. Hefur ekki verið inni þar til nú. Er þó með takmarkaður upplýsingar, en vikuveiðin í þeirri ágætu á var 20 laxar sem færði ána upp í 143 í sumar. Við höfum bara vikuveiðina þar á undan, 21 lax.

Svartá. Svartá ætlar að flýta sér hægt þetta árið. Vikan skilaði aðeins 11 löxum, (15, 9, 17, 6 og 5) Veitt á fjórar stangir. Áin þá komin í 63 laxa en í fyrra höfðu  200 laxar veiðst á sama tíma.

Affall. Affallið er slakt í bili, enda er þar varla rennsli eftir þurrkana. Fiskur undir, en takan slök. Þar var vika upp á 26 laxa sem færði heildarveiðina í 55 laxa, en 338 höfðu veiðst á sama tíma í fyrra. Fyrri vika gaf aðeins fimm laxa þannig að framförin er augljós.

Fnjóská. Slök sem fyrr. Eiginlega bara léleg, eða jafnvel ónýt, hvað sem veldur. Þegar 14 laxa vika og komið er fram í ágúst, er það lang besta til þessa, þá er eitthvað að. Vikan gaf aðeins 14 laxa (12, 4, 7, 6 og 7 laxar). Alls frá opnun 55 laxar en voru 146 á sama tíma í fyrra.

Breiðdalsá. Hvað er með Breiðdalsá? Enginn lax skráður yfir heila viku. VoV man varla eftir annarri eins uppákomu öll þau ár sem við höfum ritað um og fylgst með veiðitölum. Vikan gaf engan lax skv angling.is. Núll laxa, (10, 10, 8 og 12).  Veitt á sex stangir. Alls komnir 53 laxar á land, en á sama tíma í fyrra voru  168 laxar komnir á land og þótti slakt.