Það hlaut að koma að því að Þrösturinn fengi yfirfallslaust sumar og Jökla og hliðarárnar gætu blómstrað. Í vor sagði Þröstur okkur að hann hefði aldrei verið bjartsýnni og þrátt fyrir brokkgenga byrjun vegna flóða sem stöfuðu fyrst af risalægð, síðan af hitabylgju, þá hefur Jökla nú náð hæstu hæðum í í ljós kemur hverju allt starf Þrastar hefur skilað. Til hamingju Þröstur/Strengir, áin fór yfir 2000 laxa í dag.
Í pistli sem Þröstur setti á FB vegginn sinn í kvöld stóð: „Þar kom að því að Jöklusvæðið fór í 2.000 laxa sem var í dag 13. september. Ekki er nákvæmlega vitað hver veiddi lax númer 2.000 því nokkrir veiðimenn voru að landa á svipuðum tíma þá. En frábær dagur og þar af var einn lax lúsugur og inn á milli nýlegir laxar. Tveir voru einnig um og yfir 90 cm og er það nánast daglegt sem slíkir laxar veiðast. Efnt var til fagnaðar í húsnæði björgunarsveitarinnar Jökull og haldið upp á tímamótin.











