
Jájá, það koma nýjar tölur hjá LV á morgun, en ljóst er að þrátt fyrir flottan bata í mörgum ám, þá eru tveir turnar. Jökla átti senuna í vikunni, náði yfir 2000 löxum. Nú var Þverá/Kjarrá að loka og lokatölurnar verða milli 2700 og 2800 laxar. Árnar í Rangárþingi eru hærri, en það eru annars konar laxveiðiár. Svona tölur úr sjálfbærum ám hafa ekki sést nokkuð lengi.
Stóru Laxármenn héldu upp á daginn!
Við heyrðum aðeins i Ingólfi Ásgeirssyni, leigutaka Þverár/Kjarrár í dag. „Ég veit ekki enn lokatöluna, hún kemur á morgun, en ég giska á 2700 til 2800 laxa. Við höfum verið með mikla úrkomu og fínt vatn meira og minna. Skilyrði þannig séð fín. Þetta byrjaði svo sem ekkert betur en víða, en svo kom bara svo mikil ganga í júlí að við gáum séð þetta fyrir. Það er frábært að fá svona bata í veiðina, en stóra fréttin í þessu er, að 30-35 prósent af veiðinni er stórlax. 800 til 900 laxar, en fyrir um tuttugu árum var hann nánast horfinn. Margir tóku við sér og hafa farið vel með svæðin sín og við erum að uppskera það núna. Þverá/Kjarrá hefur oft í gegnum tíðina verið með 1800 til 2000 laxa, og allir sáttir. En núna eru vinnubrögðin að skila sér. Fyrir mér er þetta stóra breytan í þessum tölum í sumar,“ sagði Ingólfur.

Og hann sagði meira: „Það eru margar ár á Vesturlandi með flotta útkomu og það af sömu sökum, Hítará, Laxá í Kjós, Haffjarðará, Laxá í Leirársveit svo ég nefni nokkrar. En það er umtalað að Norðurá, í næsta dal við okkur, er á sama meiði og í fyrra, rétt mer að fara yfir þúsund laxa. Það er athyglsivert í þessum yfirleitt stóra bata.“
Tímamót
Sum við sögðum, LV tölurnar koma á morgun, en tvær ár til viðbótar sem við höfum frétt af, náðu þúsund núna í vikuni, Stóra Laxá í Hreppum og Laxá í Aðaldal, sem er kannski alveg jafn mikil frétt og hver önnur, því hún hefur ekki náð fjögurra stafa tölu í heilan áratug.










