Það hefur færst í vöxt að stangaveiðimenn noti dróna til að staðsetja laxatorfurnar. Til þess að þeir eyði ekki of miklum dýrmætum tíma í að kasta of ofarlega eða of neðarlega. Sums staðar eru leiðsögumennirnir með í þessu, en þetta telst vera á stálgráu svæði. Þetta ruglar laxinn, ruglar lífríkið, truflar mögulega fyrir næsta veiðimanni í viðkomandi hyl. Og er bara til ama og skammar svo ekki sé meira sagt. Halli Eríks, leigutaki Laxár í Kjós og Hítarár hefur nú gengið fram fyrir skjöldu.
Haraldur segir í færslu á FB síðu sinni: „Drónanotkun í stangaveiði er orðin ein allsherjar þvæla og skrumskæling á annars frábæru sporti. Að þurfa að fara til veiða með það á hættu að aðrir séu að notast við þvílíkan búnað er náttúrulega orðið óþolandi. Við Laxá í Kjós og Hítará á Mýrum hafa drónar verið bannaðir í veiðireglum undanfarin ár nema til að framleiða kynningarefni veiðiréttarhafa eða við veiðivörslu. Ráð væri að aðrir fetuðu sömu leið.
Það að veiðimenn skuli mæta með þetta til veiða og þannig svína á ekki aðeins veiðifélögum heldur bráðinni sjálfri er fyrir neðan allar hellur. Í gær sendi ég erindi til Landssambands Veiðifélaga þar sem ég óskaði eftir nánari útlistun á réttarstöðu veiðiréttarhafa gagnvart þessum tækjum. Það er komin tími til að afstaða til dróna sé tekin og henni komið inn í lög um lax- og silungsveiði. Það eru fordæmi fyrir slíku banni til að mynda í skotveiði, og sem dæmi er bannað að elta hreindýr á vélknúnum ökutækjum. Við núverandi ástand verður ekki unað.“
Orð í tíma töluð. Það er fræg, eða í það minnsta margsögð saga, frá Víðidalsá þar sem veiðimenn settu dróna á loft til að staðsetja laxinn í mjög löngu fljóti. Spói blés í lúðurinn og 20-30 stykki mættu, meira að segja nokkrir kjóar. Þeir felldu drónann og eyðilögðu á svipstundu. Þetta segir manni, þetta setur fáránlega pressu á lífríkið. Þetta ber að banna og ástæðurnar eru margar. Yfirleitt eru gædarnir með á hreinu hvar laxinn er og ef gæd er ekki til staðar er minnsta mál að afla sér upplýsinga hjá kunnugum. Eða bara leita! Þetta væri samt kannski ekki orðið að vandamáli ef að laxveiðin væri ekki orðin jafn dýr og raun ber vitni. Hins vegar sagði Haraldur í kommentakerfi sinnar eigin fréttar, að hann vissi þess dæmi að menn hefðu hætt við að fara í ákveðin sjóbirtingssvæði á Suðurlandinu vegna drónanotkunar. Að vísu er besta sjóbirtingsveiðin orðin fáránlega dýr, en nær laxveiðinni samt ekki enn. Einmitt.










