Fregnir frá Hafró gefa til kynna að ef til vill gætu laxveiðimenn átt von á í það minnsta miðlungi góðu sumri. Ef það gengur eftir mun það verða mikil framför frá síðustu árum sem hafa slagað í að vera beinlínis léleg. En hvað sem gerist þá er bjartsýni stangaveiðimanna alltaf söm við sig, við ræddum stuttlega við einn þeirra.
Engan annan en Pétur Pétursson sem kalla má pabba V&S á Íslandi. Hann kom því kerfi á í Vatnsdalsá fyrir margt löngu. Það virðist ekki hafa virkað sem skyldi í ánni frekar en öðrum sem gefur til kynna að fleira spilar inn í en að of margir laxar séu drepnir. Aðrar aðstæður og má þá spyrja sig, ef ekki V&S og þröngir kvótar, hvar væri íslenski laxinn þá staddur. Pétur var lengi með Vatnsdalsá á leigu ásamt félögum sínum, Birni Kr. Rúnarssyni og Sturlu kokki. Þeir reyndu líka að lífga Gljúfurá í Húnaþingi við, en það var búið að ganga of nærri henni. Þeir voru einnig með Reykjadalsá í Suður Þingeyjarsýslu og eru kannski enn og þá í samstarfi við Matta veiðileyfasala á Norðurlandi.

En Pétur er sem sagt kominn í helgan stein eftir áratuga ævistarf í þágu íslenskra laxastofna. „Ég er enginn sérfræðingur, en ég hef lifað á bökkum Vatnsdalsár í áratugi og það hafa verið góðir tímar og slæmir,“ segir Pétur. Síðustu sumur hafa verið afar döpur og veiðinni haldið uppi með vaxandi sjóbirtingsstofni og stórbleikjustofni sem þó fer þverrandi eins og víðar. En menn eru að borga veiðileyfa sem stíla á laxinn og það hefur farið frekar lítið fyrir honum síðustu sumur. Pétur segir: „Við gátum verið sáttir við 6-800 laxa sumarveiði. Og stundum fórum við í fjögurra stafa tölu í algerum toppárum. En síðustu ár hafa verið döpur og lítið af laxi. Hins vegar segir hjarta mitt svo um að þetta fari að snúast við. Ég hef auðvitað ekkert fyrir mér í því (hlær), nema tilfinninga sem ég hef þróað í gegn um árin. Og svo er Hafró með ágætar pælingar núna og seiðastatus verið góður. Þannig að ég hef góða tilfinningu fyrir þessu nú í sumar,“ sagði Pétur.
Og er laxinn farinn að snuðra? Stutta svarið er já. Nýlega birti Ásgeir Heiðar mynd af fallegum laxi í ós Elliðaána, en það voru deildar meiningar um það hvort að um væri að ræða nýgenginn lax eða hoplax. Ásgeir Heiðar taldi sjálfur að þetta væri kannski fullsnemmt fyrir nýgengna, en sló samt þann varnagla að hoplaxinn ætti að vera farinn. Þó sá Hjálmar Árnason hoplax ofan við Árbæjarstíflu s.l. sunnudag.
En hvað sem því líður, hvort sem að sumarið verður miðlungi gjöfult, lélegt eða frábært, þá er laxinn kominn upp að landi. Í „den“ voru Hvítárnetin sett út 20.mai og alltaf var eitthvað líf, stundum bara lítið, stundum meira, en nær alltaf eitthvað. Að vísu var tveggja ára laxinn sterkari í þá daga. Þá er alkunna hvað fyrstu laxarnir koma snemma í Laxá í Kjós. Og einn þekkjum við á VoV sem hefur gert sér það til gamans á fallegum kyrrum vorkvöldum frá ca miðjum mai, að aka vestur fyrir álverið í Straumsvík og röltu út með hrauninu þar sem vatnið kemur undan hrauninu. Þar kemur laxinn mjög nærri landi og stekkur mikið þegar menn hitta á. Jájá, hann er kominn og þetta fer að byrja. Bara eftir fáa daga í Urriðafossi.










