Blanda á mikið inni

Einn flottur úr Blöndu sem sleit ekki....

Jökla, Þverá/Kjarrá….topparnir í sumar þangað til að annað kemur í ljós. Við munum taka þær fyrir á næstunni, en sú áin sem hefur gripið athygli okkar öðrum fremur er engin önnur en Blanda, sem allar höfðu afskrifað sem dautt vatn. Att bú. Þangar til í sumar.

Það urðu skipti á leigutökum, Fish Partner tók við af Störum og þótti mörgum það djarft þar sem Blanda hafði verið á hraðri niðursiglingu síðustu ár sem endaði í rúmum 50 löxum í fyrra. Sem sagt, att bú. Áin dauð, en oft hefur verið sýnt fram á að byggja megi aftur upp laxastofna. En þurfti þess í Blöndu? Þegar stórt er spurt.

Staðreyndin er sú að Blanda hefur verið á niðurleið, en yfirfall á alls konar tímum hefur lengi haft áhrif á veiðitölur. Hvað Nú? 54 í fyrra, en yfirfallið kom óvenju snemma, snemma í júlí ef við munum rétt. Nú fór allt af stað eins og annars staðar, nema í Þverá/Kjarrá, að ekkert veiddist fyrst um sinn. Enginn tveggja ára lax eins og spáð hafði verið.

En bíðið við, svo fór allt í einu að veiðast. Og eftir miðja síðustu viku var buið að bóka 393 laxa. Sem er auðvitað langat frá gömlu góðu dögunum, en alveg jafn langt frá hörmungunum í fyrra. Hvað segir Kristján Páll Rafnsson, sá er tók Blöndu yfir með félaga sínu Sindra Hlíðari?

„Það er ekkert minna af laxi í Blöndu núna en í fyrra. Það er bara ekkert yfirfall. Og Landsvirkjun segir að það verði ekkert yfirfall í sumar eða haust. Það væri búið að veiðast meira af laxi ef við hefðum ekki verið að selja ána sem silungsveiðiá. Hér hefur verið fullt af útlendingum sem hafa verið í púpuveiði um alla á og þeir hafa verið að setja í og slíta hvað eftir annað. Það sem vantar í Blöndu er alvöru laxveiðimenn, en menn hafa afskrifað hana. Ef við værum betur seldir með vana menn væri aflinn kominn í að minnsta kosti 600, það er nóg af laxi í ánni. Gædarnir eru að verða geðveikir á þesum grönnu taumum….menn vilja sjá laxa á land því að það er nóg af þeim.“