Afar óvenjulegur lax veidist í vikunni í Þverá í Borgarfirði, nánar tiltekið í hylnum Gelli. Þetta var 99 cm hængur sem tók litla Frances með hexacone haus.
99 cm laxar eru afar sjaldséðir í íslensku laxaflórunni. Þótt ótrúlegt megi teljast þá eru 100plús laxar mun algengari þó fáséðir séu. Sama má segja um 96-98 cm laxa. En 99 cm…eins og hvítir hrafnar.
Veiðikonan heitir Ágústa Steingrímsdóttir og ef að minnið svíkur ekki þá veiddi þessi sama kona mun stærri lax, einnig í Þverá, fyrir alveg góðum slatta af árum. Minnið segir 23 eða 24 punda.
En talandi um 100plús, þá eru þeir fáir enn sem komið er, þó kom einn nýlega, 101 cm úr Urriðafossi fyrir skemmstu. En það má segja að þeirra tími sé að koma, haustið að detta inn, hængarnir orðnir legnir og geðstirðir. Aldrei líklegri til að hjóla í fluguna en einmitt þá. Það er því eflaust tíðinda að vænta þegar kemur að stórlaxafréttum. En við efum að annar 99 cm veiðist á þessari vertíð. En hver veit?










