Við höfðum orð á því á dögunum að taka til umfjöllunar nokkra sniðuga vorveiðistaði. Nú er kominn júní og hver að verða síðastur að tala um vor þetta árið. En í Hraunsfirði er enn vor og það er bæði geggjaður, fallegur og krefjandi veiðistaður.
Við báðum Hjörleif Steinarsson starfskraft hjá SVFR að vera okkur innan handar, en hann er öllum hnútum kunnur í Hraunsfirði, sem er vel að merkja, eitt af svæðum Veiðikortsins. Það er gjarnan talað um Hraunið, Mölina og botninn þegar Hraunsfirði er lýst, en eins og nafnið bendir til er hér ekki veitt í neinu ferksvatnslónu heldur söltum firði þar sem sjávarföllin hrynja inn og út. Þess vegna lýtur sjóbleikjan ekki þessum venjubundnu tímasetningum. En Hjörleifur lýsti svæðinu svona:
„Vorveiðin í Hraunsfirði er nær eingöngu bundin við Hraunsvæðið svokallaða, á meðfylgjandi mynd má sjá helstu vorstaði, ath að í mölinni næst grjótgarðinum við stífluna er oft hægt að reka í bleikju, yfirleitt gengur hún hringinn þarna og þá er oft gott að vera hreyfanlegur. Mér hefur gengið best að veiða þarna með púpum og nymphum, langa tauma 10-12 fet og kóníska(frammjókkandi). Ég er hættur að nota minna en 8p taum þarna, hef oft sett í mjög stórar bleikjur og þær slitið. Best er að draga púpurnar mjög hægt inn, einnig er vert að gæta að toppfluguklaki, ef klak byrjar þá er gott að skipta í drydropper, black gnat/ galdralöpp þurrflugu og Langskegg í 20-30 cm taum aftan úr henni.
Þolinmæði er dyggð þarna, oftast er besta veiðin snemma á morgnana en á góðviðrisdögum má oft sjá bleikjutorfur ganga með landinu og þá er gaman að kasta á uppitökur og freista hennar með einhverjum flottum flugum, ég nota mest stærðir 14-16 þarna en einstaka flugur í 12, helst eru það marflóareftirlíkingar og Langskeggur sem ég nota í 12.“
Við þetta vill VoV bæta að þegar talað er um að Hraunsfjörður sé krefjandi, þá er einkum átt við einmitt Hraunið. Það er afar úfið og þó að slóðar séu þar þá eru þeir grýttir og ströndin sjálf talsvert klungur. Ekki kannski svæði fyrir yngstu krakkana, en þau eldri tvímælalaust, en allir þurfa að vera vel skóaðir því þetta „undirlendi“ rífur í! Þá má vel þetta bæta að ýmsir hafa gert góð skot þarna í vor og að venju vænar bleikjur í boði.











