Norðurá næst og lax víða að sjá

Berghylsbrot og Kýrgrófarhylur.

Norðurá er á númer tvö í röðinni á eftir opnun Urriðafoss í Þjórsá. Opnun Norðurár er nú um miðja vikuna og lax er að sjást býsna víða sýnist okkur.

Alla vega segir leigutakinn, eða öllu heldur umboðssali árinnar, Rafn Valur Alfreðsson frá því að um helgina hafi alls 16 laxar sést víða í ánni, bæði neðan Laxfoss og „milli fossa“ sem er svæðið frá Laxfossi að Glanna. Ekki er nú endilega algengt að laxinn fari svo langt svo snemma, dæmi þó um að laxar hafi sést og veiðst á Bergylsbroti í opnun og sannarlega hefur lax sést einmitt þar nýlega. Og ekki nóg með það heldur segir Rafn frá því að um helgina hafi sjö stykki verið búin að skrá sig í teljaranum í Glanna. Þar fyrir ofan er víðfeðmt svæði og örðugt að finna sjö laxa. VoV mydni þó veðja á Glitstaðabrú. Allavega var það líklegur staður svo snemma hér fyrir allnokkrum árum. En spennandi er þetta sannarlega, Rafn er einnig með Miðfjarðará sem opnar ekki fyrr en 15.6, en samt eru hann og hans menn að sjá laxa á líklegum vorstöðum nú þegar, t.d. í Kistunum í Vesturá. En það er alltaf sami spenningurinn þegar þetta er í startholunum, svo veit enginn hvernig fer…