Allt að koma og meira til….

rosatröll úr Tungufljóti, spurningar vakna um hversu gamlir þessir fiskar eru og hve oft þeir hafa hrygnt.

Veðrið hefur breyst, hver lægðin af annarri jú, en það hefur hlýnað. Myndir og fregnir af svæðum eins og t.d. Tungufljóti og Austurbakka Hólsár segja sína sögu. Tvær stolnar myndir fylgja þessu og sú úr Tungufljóti er svakalegur öldungur.

Einn flottur af Austurbakanum…

En hitt sem okkur langar að nefna er nokkuð sem hún vinkona okkar Kolbrún Magnúsdóttir sem rekur núna Veiðibúð Suðurlands, tók það djarfa skref að taka við af Morthens gamla. Hún hefur aldeilis breytt búðinni, uppstoppaðir, fuglar, vaðstígvél, kúrekahattar og við vitum ekki hvað, eins konar krambúð veiðimannsins. En nú er hú n Kolla komin með eitthvað nýtt og satt að segja vitum við ekki hvað það er…..

lesi hver fyrir sig

Einshvers konar efni til sð smyrja á flugur, spúna og aðra beitu, Hinar ýmsu tegundir virka í bæði söltu vatni og ósöltu. Best að skoða sig um hjá Kollu. Hún er líka búin bæta við Hrauni við veiðiloeyfin sín, var og er með Laugardæli þar sem vel er að veiðast þó að fáir fari.

Vorið er komið. Sá 100 lóur í dag, 30 tjalda, óteljandi margesir osfrv…skammdegið og veturin hafa vikið.