Framtíð Elliðaána –

Teljarinn í Elliðaánum.

Komið fram yfir miðnætti þannig að „á morgun“ þýðir fimmtudagur. Þá stendur SVFR fyrir ráðstefnu um framtíð Ellliðaána og má með sanni segja að oft hafa verið haldnar ráðstefnur af minna tilefni. Í frétt á vefsvæði SVFR segir:

„Fimmtudaginn 16. apríl kl. 20:00 efnir Stangaveiðifélag Reykjavíkur til opins fundar um málefni Elliðaánna og býður öllum framboðum sem taka þátt í komandi borgarstjórnarkosningum að koma og gera grein fyrir afstöðu sinni. Elliðaárnar eru einstakt náttúrufyrirbæri í miðri höfuðborginni. Þær eru dýrmætt útivistarsvæði, mikilvægt búsvæði fisks og annars lífríkis og hluti af náttúruarfi Reykjavíkur. Á sama tíma eru þær viðkvæmt vistkerfi sem þarf skýra vernd og ábyrga stefnu.

Á fundinum verður rætt um framtíð ánna, framkvæmdir á áhrifasvæði þeirra, aukna umferð um dalinn, brúarsmíði, skipulag og hvernig borgin hyggst tryggja raunverulega vernd Elliðaánna til framtíðar. Á aðalfundi SVFR 26. febrúar síðastliðinn var samþykkt ályktun um vernd Elliðaánna. Með þessum fundi viljum við skapa vettvang fyrir opna, málefnalega og skýra umræðu við þá sem sækjast eftir umboði borgarbúa.

Fundurinn verður haldinn á kaffihúsinu Elliða við Rafstöðvarveg 10-12, í hjarta Elliðaárdal, og er opinn öllum. Við hvetjum alla sem láta sig framtíð Elliðaánna varða til að mæta.

Þetta er flott framtak hjá SVFR, raunar hreint með ólíkindum hvaðElliðaárnar lifa þrátt fyrir námunda við þéttbýlið og hversu oft hefur verið vegið ógætilega að vistkerfi árinnar. Verður nú fróðlegt að sjá hvaða flokkar senda fulltrúa og í framhaldinu hvort að gjörðir muni fylgja orðum, en sem öllum er kunnugt þá segja pólitíkusar gjarnan „vil viljum“, en ekki „við ætlum“. Stór munur þar á. Athyglisverð ráðstefna fram undan og óhætt að mæla með henni.