Stærsti lax vertíðarinnar í Eystri Rangá kom á land í dag. Þeir stóru eru sem sagt enn að tínast inn þrátt fyrir að flestar ár hafi nú lokað. En stórlaxarnir koma jú yfirleitt flestir á haustin eins og alkunna er.
Sá stóri úr Eystri Rangá var 101 cm hængur sem Grzegorz Loszewski landaði og var það fyrsti laxinn af nokkrum sem þeir félagarnir Grzegorz og Cezary Fijalkowski lönduðu í Eystri Rangá í dag. Nokkrir um og rétt innan við meterinn hafa veiðst, en þessi náði mesta málinu.










