Nýjustu tölur af angling.is miða við stöðuna að kvöldi 27.september. Að renna niður töfluna má sjá margar lokatölur, eins nokkrar ár sem eru í þekktari kantinum sem eru ekkert að flýta sér að setja inn tölur. Allt komið í hægagang, enda flestu að ljúka á laxveiðibökkum. Rangárnar malla áfram með þriggja stafa vikutölur, en verðskuldaða athygli vekur Laxá í Kjós.
Kjósin er eiginlega laxveiðiá vikunnar. Lífið var murkað úr vertíðinni að stórum hluta með endalausum þurrkum og heitu sólfarsveðri. En meiri óstöðugleiki í veðri með rigningarskvettum inn á milli breyttu aðstæðum til hins betra og síðasta vika var ein sú besta í sumar/haust, 101 lax plús þessi venjulegi meðafli stórra sjóbirtinga. Laxá í Kjós var sem sagt lífleg þessa síðustu viku sína, en heildartalan er samt döpur, 549 laxar, í litlu samræmi við hvað gekk í hana af laxi. En það dágóður slatti, hefur VoV frá bestu heimildum.
Annars var Ytri Rangá með hæstu vikutöluna, 201 lax og fór þar með í 3334 laxa. Veitt er til 20.október, drjúgur tími því enn til stefnu, en allt síðasta sumar veiddust 5086 laxar. Eystri var tifandi í straumröstinni af Ytri með 143 laxa yfir vikuna og fór þar með í 2347 laxa. Áin gaf alls 3807 laxa í fyrra, en í henni er einnig veitt til 2.október.
Stóra Laxá er eins og margar aðrar ár með talsvert lakari útkomu heldur en í fyrra, aðeins 465 laxa á móti 934 allt síðasta sumar. Þar var þó nokkuð góð vika, ein sú besta þessa vikunna, 77 laxar og margir stórir.
Að öðru leyti er þetta nokkuð líkt og fyrr og hér kemur nokkuð breytt tilhögun á röðinni. Árnar listaðar eftir laxafjölda og í stað vikutölu er viðmiðunartala, lokatala síðasta árs. Loks er tekið fram þar sem um lokatölu er að ræða.
Ytri Rangá 3334 (5086)
Eystri Rangá 2347 (3807)
Miðfjarðará 1334 (1522) Lokatala
Þverá/Kjarrá 1306 (1448) Lokatala
Selá í Vopn. 1234 (1164) Lokatala
Hofsá 1088 (1211) Lokatala
Norðurá 1087 (1352) Lokatala
Haffjarðará 905 (870) Lokatala
Langá 709 (1077) Lokatala
Laxá í Aðaldal 685 (402) Lokatala
Laxá á Ásum 660 (820) Lokatala
Víðidalsá 633 (810) Lokatala
Elliðaár 625 (795) Lokatala
Laxá í Kjós 549 (1017)
Jökla 485 (803)
Stóra Laxá 465 (934)
Skjálfandafljót 423 (367) Lokatala
Hólsá að austan 422 (403)
Vatnsdalsá 382 (415)
Haukadalsá 373 (380) Lokatala
Blanda 359 (577) Lokatala
Á listann vantar alla vega þrjár ár sem myndu vera ofar á þessum lilsta, en skiluðu ekki inn nýjum tölum, Laxá í Dölum, Grímsá og Laxá í Leirársveit. Þá eru þær orðnar nokkrar vikurnar síðan að angling.is birti nýjar tölur frá Urriðafossi, en það er líklega vegna þess að þar veiðist lítið annað en sjóbirtingur þegar kemur fram á haust.










