Tungufljót: Tvö tröll sama daginn

Belgmikil 102 cm hrygna úr Tungufljóti. Myndir eru báðar frá Lax-á.

Það hefur borið nokkuð á svokölluðum Hundraðkörlum eða krókódílum að undanförnu, en það eru grútlegnu hængarnir í yfirstærð sem tapa vitinu gjarnan á haustin er greddan verður öllu viti yfirsterkari. Oftast eru það hængar á þessum árstíma, en núna kom m.a. ein hrygna.

102 cm hængur úr Tungufljóti.

Tungufljót í Árnessýslu er enn opið, enda á sem byggir á gönguseiðasleppingum. Þegar líður á sumar er oft allgóð veiði frá fossinum Faxa og niður úr. Breiðan fyrir neðan Faxa er þó aðal staðurinn og mikill stórfiskastaður og það sannaðist í dag þegar leigutakinn Árni Baldursson var þar á ferð með vinum sínum. Meðal þeirra laxa sem voru dregnir á þurrt voru ekki einn, heldur TVEIR af þessari stærðargráðu, 102 cm hængur….og 102 cm hrygna, sem má búast við að sé mun þyngri en hængurinn, enda léttast þær ekki eins skart er haustar og hængarnir, svo er fyrir að þakka vaxandi þroska hrogna. Þá heyrðist nýverið af 102 cm laxi úr Bláhyl í Stóru Laxá.