Mun fimmtudagsspáin glæða veiðina?

Vatnsleysi plagar laxa og veiðimenn víða um land. Myndin er frá Leirvogsá 2019, ástandið er ekki miklu betra nú.

Ef að marka má veðurspána þá verður kærkomið úrkomusvæði yfir sunnan- og vestanverðu landinu á fimmtudag. Búist er við alvöru dembu. Óhætt er að segja að nánast allar laxveiðiár á svæðinu hafi verið að öskra á þessa veðrabreytingu í all nokkrar vikur.

Sem sagt, það gæti komið alvöru rigning á fimmtudaginn. Frá morgni til kvölds, alvöru bomba. Og ekki seinna vænna til að hræra upp í laxveiðinni, en lengi hefur sú spurning verið á vörum veiðimanna hvað árnar á þessum slóðum eiga inni. Flestar eru sagðar hafa fengið sterkar göngur, en skilyrðin verið svo krefjandi að fáir fiskar hafa verið að veiðast. Árnar svo vatnslitlar að annað eins hefur ekki lengi sést. Það þarf þó ekki að fara lengra aftur í tímann heldur en 2019 til að finna svipað ástand. Og þá leið veiðiskapurinn mjög fyrir og talað var um náttúruhamfarir.

Þann 9.ágúst höfðu t.d. 230 laxar veiðst í Laxá í Kjós, 331 í Grímsá, 453 í Langá og 119 í Laxá í Dölum svo að dæmi séu tekin. Fáheyrðar tölur þegar svo vel er liðið á vertíð. Sunnanlands Má nefna að Affall var komið með 104 laxa þann 9.8 og Þverá aðeins 20. Þekktar ár á svæðinu afar vatnsrýrar, t.d. Þverá, Stóra Laxá, Skógá og Vatnsá. Þessar ár eru ekki „fullar af laxi“ eins og hinum er lýst, öllu fremur að þar bíði lax eftir skilyrðum til að ganga og dæmi um að óþolinmæti gæti. Til dæmis veiddust fjórir laxar í Skógá í gær og annað eins lak af. Fram að því voru það aðeins fiskar á stangli. En niðri við ósinn hafa menn séð mikið af fiski sem bíður færis og eitthvað af honum greinilega byrjað að ganga. Í Þverá hefur lítið verið af laxi, en uppsöfnun í ármótunum við Eystri Rangá. Og Svipaða sögu má segja um Stóru Laxá, mikið af laxi á Iðu og í Vatnsá í Heiðardal er uppsöfnun í jökulánni Kerlingardalsá og ármótahyl ánna tveggja, þ.e.a.s. laxinn bíður færis, en sjóbirtingurinn drífur sig upp.

En þetta með rigninguna á fimmtudaginn, ef að hún lætur sjá sig, þá eru því miður ekki blaut veðurkort næstu daga á eftir. Þannig gæti enn orðið bið á góðum kafla þó að fimmtudagsspáin gefi tilefni til bjartsýni um að það komi þó í það minnsta gott skot í kjölfarið.