Árnar Þagna á RUV í kvöld

Segja „loksins er komið að því“, heimildarmyndin Árnar þagna eftir Óskar Pál Sveinsson verður sýnd í Ríkissjónvarpinu strax að loknum Landanum í kvöld Hvítasunnudag 24. maí.

Í frétt frá IWF sem er einn framleiðandi myndarinnar segir: „Myndin fjallar um áhrif sjókvíaeldis á laxi á lífríki og afkomu bænda sem hafa byggt lífsafkomu sína á hlunnindum af stangveiðum í Noregi og á Íslandi.

Í júní 2024 fyrirskipaði Umhverfisstofnun Noregs lokun 33 af þekktustu laxveiðiám Noregs vegna skaðans sem sjókvíaeldi á laxi og loftslagsbreytingar hafa valdið á villtum laxastofnum. Á einu augnabliki hvarf stór hluti lifibrauðs fjölskyldna sem hafa byggt afkomu sína á hlunnindum af stangveiði í marga ættliði.

myndinni eru viðtöl við eigendur norskra laxáa, sem tekin voru nokkrum dögum eftir að fótunum var kippt undan tilveru þeirra, og fólk í sveitum Íslands um þá framtíð sem mögulega bíður þess og fjölskyldna þeirra.“

Við má bæta að mikllar og háværar deilur hafa lengi staðið milli þeirra sem eru með og á móti opnu sjókvíaeldi, af ýmsum orsökum, og það telst til tíðina að SFS, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa hnýtt í RUV fyrir að taka myndina til sýningar. Það segir manni e.t.v. eitt og annað um innihaldið.