Þá eru vikutölurnar komnar og því miður verður að segjast að þetta var meira af því sama. Hvað „meira af því sama“ áhrærir, þá þyðir það auðvitað að þetta var jah…..meira af því sama.
Sem sagt sami dróminn nema á vissum stöðum og sömu náttúruhamfarirnar í vatnsbúskap áa á gervöllu Suður- Suðvestur og Vesturlandi. Jafnvel þar sem eitthvað fyrirfinnst af fiski eru ill skilyrði ekki að fara að hjálpa til og eina spurningin héðan af hlýtur að vera, hvað eiga þessar ár inni þegar (og ef) skilyrði batna þegar haustar að. Staðan krystallast kannski einna best í þeirri staðreynd, að að 9.ágúst eru aðeins tvær ár, Rangárnar, komnar með fjögurra stafa tölu og sjálfbæru árnar allar vel að baki, nema þær á Norðausturhorninu, sem eru á góðu róli. Og Rangárnar eru samt sem áður vel á eftir sjálfum sér miðað við sama tíma í fyrra.
Skoðum nú listann, tökum tólf hæstu árnar og miðum þá við þær sem hafa náð 400 laxa markinu. Það er svolítið agalegt þegar skoðað er hvaða frægu ár eru EKKI á listanum. En sem fyrr er fyrsta talan heildartalan miðað við 9.8, þá kemur vikutalan og loks heildartala síðasta sumars.
Ytri Rangá 1419 – 334 (5086)
Eystri Rangá 1170 – 246 (3807)
Þverá/Kjarrá 829 – 88 (1448)
Norðurá 710 – 61 (1352)
Selá 688 – 59 (1164)
Miðfjarðará 680 – 124 (1522)
Urriðafoss 661 – 32 (983)
Haffjarðará 642 – 85 (870)
Hofsá 623 – 108 (1211)
Jökla 433 – 4 (803)
Langá 433 – 38 (1077)
Laxá á Ásum 420 – 89 (820)
Elliðaárnar 419 – 44 (798)
Fjórir í Jökla útskýrist af yfirfallinu sem hófst 1.ágúst. Miðfjarðará er með góða viku, Laxá á Ásum líka, sem og Hofsá. Annars er þetta ekki upp á marga fiska.










