Vikutölurnar komnar og heildarmyndin er bara býsna góð, sérstaklega miðað við hörmungina 2025 og slök ár þar á undan.13 ár, með Rangánum, komnar yfir þúsund. Þær voru mun færri í fyrra. Þessi bati togar okkur að svokölluðu meðalsumri þó að reikna eigi allt út enn þá, auk þess sem enn eru þetta ekki allt lokatölur.
Í staðinn fyrir að velta okkur of mikið uppúr tölunum, því þær eru til reiðu á skipulegan hátt á angling.is, kjósum við að taka eitt og eitt út úr breytunni. Við höfum t.d. hampað Þverá/Kjarrá og Jöklu sem turnunum þetta sumarið í síðustu fréttum. Það er bara staðreynd þó að Rangárnar eigi eftir að enda með miklu hærri tölur. Það er bara annarskonar veiði. Sjálfbærar og ósjálfbærar ár eru bara ekki það sama þó að laxinn líti eins út. En allt á þetta rétt á sér.

En tölum t.d. um Blöndu sem skóf botninn í fyrra með aðeins 54 laxa. Núna er hún komin í 451 og Kristján Páll hjá Fish Partner, leigutaki árinnar segir að þó að ekkert yfirfall hafi hjálpað rétt eins og í Jöklu, þá hafi líka verið heilmikill lax í ánni í fyrra, menn bara gáfu ána upp á bátinn og Fish Partner hélt dæminu gangandi með því að afhjúpa Blöndu sem afburða silungsveiðiá. Áfram Blanda.
Þá hefur verið heilmikið um það talað að vesturhluti Norðurlands hafi verið dapur, minna af laxi og vatnslítið er á sumarið leið. Miðfjarðará hefur samt einhvern vegin alltaf haldið dampi og er turninn í þeim sýslum….ásamt Hrútu! Nýjustu tölur herma 585 laxa úr Hrútu sem gaf aðeins 197 í fyrra. Þó hefur áin verið erfið seinni partinn vegna vatnsskorts.
Þá er mikið talað um batann á Vestur- og Suðvesturlandi. Og það er tilfellið. Flestar af bestu batatölunum eru af þeim slóðum. En. Korpa var með sömu tölu, 132 laxa og á sama tíma í fyrra. Enginn bati þar. Flóka, sú stabíla og flotta á, kom upp hjá angling.is með 164 laxa en var þó með 210 í lélegheitunum í fyrra. Hvað veldur? Á sama tíma er Gljúfurá komin með 201 lax en var með 117 í fyrra. Nú eru laxastofnar Gljúfurár og Norðurár mjög líkir, yfirleitt frekar smáir og afturmjóir laxar. Og þær sameiinast og renna saman í Hvítá við Straumana. Á sama tíma og Gljúfurá er með þennan bata sinn þá stendur Norðurá nánast í stað, 1191 nú á móti 1150 í fyrra. Þó á hún sæti í tignarlista fjögurra stafa ána.
Þá hafa menn bent á að 825 laxar veiddi í Elliðaánum á móti 724 í fyrra sé í engu samræmi við þá mergð af fiski sem var í ánni. Kannski að kenning Halla Eiríks í Kjósinni eigi þar svar, of mikil staðviðri, of lítið upp og niður á ánni vegna allskonar veðurs. Seinni hluti sumars var dálítið svoleiðis, en á sama tíma nær Laxá í Kjós samt verulegum bata.
Og Sporðaköst minntu okkur á að Stóra Laxá náði fjögura stafa tölu í ánnað skiptið á þessari öld. Greinilega flott uppbygging þar. Við nefndum líka í fyrri frétt þá dásemd að Laxá í Aðaldal er komin yfir 1000 stykki. Í fyrra veiddust í ánni 583 laxar og kunnugir Laxárkarlar töluðu fjálglega um að þetta væri allt að koma. Víða var brosað, enda áin búin að vera á hraðari niðurleið en Blanda ef það þá hægt. En þeir vissu hvað þeir sungu og eflaust væri talan úr Laxá miklu hærri ef að þó nokkrar vikur hefðu verið ill- eða óveiðandi vegna slýreks.









