
Þann 14. mai síðast liðinn birtum við viðtal við Gísla Ásgeirsson framkvæmdastjóra 6 Rivers á Íslandi þar sem hann sagði m.a. frá nýjum og spennandi teljurum sem að fyrirtækið ætlaði að setja í nokkrar ár á Norðausturhorninu. Nú er sá fyrsti kominn skv frétt á FB síðu 6 Rivers og því við hæfi að rifja upp það sem Gísli sagði í samtalinu.
„Þá munum við setja niður þrjá nýja teljara, af nýrri gerð, nýjar týpur þar sem myndavélarnar í þeim munu með aðstoð gervigreindar læra að þekkja þá fiska sem í gegnum fara. Þessir teljarar verða neðarlega í Hofsá, Kverká og Hafralónsá. Léttar girðingar munu beina fiskum að myndavélunum. Þá fáum við betri mynd á göngurnar, hvort heldur það er lax, urriði, bleikja, hnúðlax eða eldislax.“
Og nú er sá fyrsti kominn og riðið er á vaðið í Hofsá. Á myndinni má sjá að skrýtin girðing liggur þvert á og virkar í fljótu bragði til trafala. En svo er ekki, þetta er líkt og við teljarann í Elliðaánum, laxinn rekst á grindur ef hann hann hittir ekki strax á gatið…og reynir bara aftur og aftur þangað til að dæmið gengur upp.









