Þetta er miklu betra en í fyrra, en batanum verulega misskipt eins og oft vill verða. Sjálfbæru árnar eru ýmist lokaðar eða á síðustu dögunum. Æsingurinn í veðrinu síðustu daga dró fram vikutölur yfir 200 stykki í bæði Laxá í Kjós og Laxá í Dölum.
Listi angling.is sýnir okkur að 12 af sjálfbæru ám landsins ná að komast yfir 1000 laxa og sumar þeirra langt yfir þá tölu. Fjórar þeirra skera sig þó úr, Miðfjarðará, Laxá í Aðaldal og Jökla sem eru þær einu í þessum mikla batahópi sem eru ekki á Vesturlandi. Sú fjórða er Norðurá, því þó að hún hafi náð yfir fjögurra stafa töluna þá er batinn frá síðasta ári lítill. Þetta er athugunarefni fyrir eigenddur og umsjónarmenn perlunnar Norðurár.
Rangárnar eru samt að venju hæstar, en þar hefur veiði dalað dálítið þó þar sé enn rótað upp laxi og verður svo langt fram eftir október, enda þarf ekki að verja neinar hrygninigarstöðvar. Annars ætlum við ekki að éta upp talnavinnu angling.is, þetta er svo skilmerkilega sett þar upp. Fögnum bara batanum þó að honum sé misskipt.

Að öðru. Genginn er einn þekktasti og slyngasti veiðimaður landsins, þeir gömlu tína hratt tölunni, en við eru að tala um Pétur Pétursson, ekki Vatnsdals-Pétur heldur Aðaldals-Pétur og eru þá aðeins einn þeirra þriggja bræðra nn uppistandandi, því að Doddi, Þórður Pétursson, lést fyrir nokkrum misserum. Aðalsteinn, þriðji bróðirinn sendi þessa tölu á FB síðu sína að Pétri gengnum: -Elskulegur og kær bróðir minn, elífðarvinur og veiðifélagi, Pétur Pétursson frá Árhvammi í Laxárdal, fyrrverandi leiðsögumaður lést á sjúkrahúsi Húsavíkur 13.sept 83.ára að aldri eftir erfið veikindi.
Með honum er genginn veiðimaður af Guðsnáð og frábær leiðsögumaður, öllum öðrum duglegri, vinur og góður félagi.
Fiskur er ég á færi í lífsins hyl,
fyrr en varir kraftar mínir dvína.
Djarfleg vörn mín dugar ekki til,
dauðinn missir aldrei fiska sína.
Höf. Steingrímur Baldvinsson.
Kveðjur til Aðalsteins og fjölskyldu frá VoV.

Og að enn öðru, menn hafa gaman af því að tala um stóru laxana sem koma af og til á land í íslenskum ám, sérstaklega á haustin, þeir sem fá mesta umtalið eru þeir sem ná 100 cm, en sjaldan verða þeir íslensku stærri en 104-105 cm. Einhverra hluta vegna er komin einhver tíska að kalla þessa stórfenglegu fiska „hundraðkalla“ og „krókodíla“. En talandi um slíka höfðingja, gaman væri ef að svona fiskar sæust af og til í íslenskum ám, laxar á borð við þann sem Keir Lamar landaði í ánni Nunavik í Quebec. 113 cm og ríflega 35 pund! Kannski eru þeir til hér enn, a.m.k. eru til gamlar sögur um risalaxa.










