
Menn eru aðeins farnir að þefa af Þingvallavatni. Þar er enn fremur vetrarlegt líkt og sjá má á myndaseríu á FB síðu Nils Folmer Jörgensen sem fór þangað í vikunni ásamt fleirum. Þeir veiddu vel þrátt fyrir að hafa eytt stórum hluta dagsins í að losa jeppana úr festum.
Það er nú málið, vorið komið og slóðarnir víða varasamir. Leigutakar hafa varað kaupendur leyfa sinna við slíku. Annars er svæðið sem gjarnan hefur verið kennt við ION hótelið nú komið í hendur Fish Partner. Nils og félagar veiddu þó í alls sjö klukkustundir, enda birtan að taka myrkrið á Ippon þessa daganna. Þeir lönduðu 20 fiskum. Sjá má af myndum Nils að þeir voru ekki að landa neinum voðatröllum, flottum fiskum þó. Allra síðustu árin hafa menn tekið eftir því að þeim hefur fækkað talsvert, þ.e.a.s. voðatröllunum. Sjá menn það bæði á veiðislóð og eins þegar farið er í pílagrímsförina að Öxará að hausti. Mikið af fiski vissulega, en lítið um ferlíkin. Þeir drepast úr elli eins og gengur og eins hafa margir nefnt að stærri fiskar væru horaðir. Á myndum Nils er ekkert slíkt að sjá, en svo sem ekki mynd af hverjum fiski.
En við lögðum þetta fyrir Sindra Hlíðar hjá Fish Partner fyrir nokkrum misserum og hann sagði þetta:
„Það er klárlega eitthvað að í gangi, hvort þetta séu eðlilegar sveiflur og stofninn finnur jafnvægi kemur í ljós. Svo er jafnvel spurning hvort þetta sé eðlilegt ástand? Fyrir 20 árum, þegar ekkert var af urriða í vatninu var ekki eðlilegt ástand og ekki verið eðlilegt síðan urriðanum var nánast útrýmt við gerð Steingrímsstöðvar. 40-60cm fiskurinn er mjög vel haldin, en þeir sem voru að veiðast í Villingavatnsárós og stærri fiskurinn er ekki allur horaður. Flottir 70-90cm að veiðast, en ekki jafn mikið og fyrir 5árum síðan.“
Margar kenningar hafa fengið vængi. Sumar segi að uppgangur urriðans, sem var ræktaður aftur upp, hafi á endanum verið hans banabiti, því að hann hafi einfaldlega étið sig út á gaddinn. Til marks um það er að murtuhrygning hefur nánast engin verið síðustu ár og bleikjan sem veiðist er nánast öll stór, yngri árgangar því fáliðaðir. En eitthvað hafa þeir í sig að setja því þetta eru engir slápar á myndunum.
En stóra vatnið er sem sagt að detta í gang, ION svæðin komin af stað og IO Veiðileyfi að boða að Svörtuklettar verði opnaðir á morgun.









