Það hafa borist fréttir af 704 laxa „maðkaholli“ í Ytri Rangá eftir langt skeið fluguveiða, þar sem margir hafa auk þess verið að sleppa löxum sínum. Vitanlega er Ytri Rangá ekki sjálfbær laxveiðiá, en á ekki svona massaslátrun að heyra sögunni til?
Í öllum sjálfbærum ám er þetta athæfi fyrir löngu aflagt. Annað hvort er öllum laxi sleppt eða hafður hóflegur kvóti, enda á þessi tegund undir högg að sækja. En þetta þykir vera í lagi í Ytri Rangá vegna þess að áin er ekki sjálfbær og byggð upp á laxi sem strokinn er að hausti, alinn í kerjum, settur í tjarnir, hvaðan hann gengur til sjávar.
Þetta er ekki sjókvíaeldislax, heldur hafbeitarlax. Sem sagt villtur lax. Og hann gengur í ána sína til að hrygna og viðhalda tegundinni. Í Ytri Rangá gengur það illa upp vegna vatnshita og botnlags. En þeir laxar sem lifa af svona slátrun gera það engu að síður og annað hvort hverfa til sjávar að vori eða deyja. Fyrir utan það síðan, að bjóða veiðimönnum sem seinna koma að mæta á slíka sviðna jörð. Jú Ytri fer í nokkuð góða heildartölu, en að svona líðist þar skilar óbragði í munninn.










