„Usual suspects“ leiða enn og Rangársystur loga stafna á milli

Hvað er maður búinn að sjá margar svona myndir af Nils Folmer síðustu árin, hér er 101 cm hængurinn úr Jöklu.

Enn og aftur voru það Þverá/Kjarrá og Jökla sem áttu sviðið meðal sjálfbæru ána. Hinar tvær, Rangársysturnar voru hins vegar með hæstu vikutölurnar og eru með sanni sprottnar til lífsins eftir harðlífisbyrjun. Þá kom önnur meterssleggja á land, að þessu sinni úr Jöklu. Enginn annar en Nils Folmer þar á ferðinni.

Nils er svo heppinn að hafa verið í risavikunni í Jöklu og hann segir svo frá þeim stóra sem hann landaði: „Síðdegisvaktin hófst við Teigsbrot. Tveir smálaxar þar, en svo kom stór ólga um leið og flugan var tekin. Ég sá hann vart fyrr en að hann kom í háfinn, hann hélt sig djúpt, tók sterkar rokur og þá veit maður að það er alvöru fiskur á hinum endanum. Sem var raunin, 101 cm hængur og einn af þeim sem gengu snemma því hann hafði tekið lit. Í stað þess að kasta aftur var ferðinni heitið að Hauksstaðabroti og þar kom aftur risaboði og negling. Í fyrsta kasti. Ég var rórri núna því ég var búinn að landa þeim stóra, en þessi var ekki mikið minni, 98 cm! Og nýgenginn. Tveir laxar í tveimur köstum á sitt hvorum staðnum í íslenskri á, beinlínis óraunveruleg upplifun. En um Jöklu má segja að hún er full af fiski og það er lax að ganga alla daga, allan daginn.“

Til að klára Jöklu þá gaf vikan 328 laxa og áin þá komin í 675 laxa eftir fádæma erfiða byrjun. Metið í hættu þar eins og við höfum áður komið að.

En í sjálfbæru deildinni, því nú skiptir angling.is ám upp í „villtir laxar“ og „gönguseiðasleppingar“, þá Er Þverá/Kjarrá enn á miklu skriði. Nú hefur langvarandi vætutíð vikið fyrir bjartara veðri og minni rigningu. Ár hafa sjatnað og yfirleitt veit það á gott, eða þar til að of mikið er runnið í burtu og árnar sitra áfram vatnslitlar. En það er ekki komið að því og verður vonandi ekki þetta sumarið. En Þverá/Kjarrá var með sína fjórðu 300plús viku, 329 stykki, og alls hafa veiðst í ánni frá mánaðamótum til 28.júlí 1311 laxar. Áin var í síðustu samantekt angling.is með 1559 laxa.

Vestan- og Suðvestanlands var prýðisgangur og all nokkrar ár að losa hundrað laxa vikumúrinn. Kjósin 158, Langá 107, Grímsá 111, Haffjarðará 141, Elliðaárnar 100, Laxá í Leirársveit 101 og Hítará 99. Menn geta síðan séð stöðuna betur á angling.is, en þessar vikutölur gefa til kynna líflega daga. Hins vegar voru margar af þessum ám svo lélegar í fyrra að það má ekkert út af bregða með þær sumar. Aðrar eru þó á góðri siglingu að ná mun betri tölu en í fyrra.

En Sunnanlands- og Norðaustan. Urriðafoss var með sína bestu viku, 177 stykki og Stóra Laxá með 92. Fyrir utan Jöklu eru þarna á Norðausturhorninu systurnar frægu Selá og Hofsá. Þar er undarlega rólegt, sérstaklega þegar horft er til góðs gengis í nágrannaánni Jöklu og þeirri staðreynd að Selá og Hofsá hafa komið með besta móti útúr slökum sumrum síðustu árin. Vikutalan í Selá var aðeins 41 lax og 67 í Hofsá. Selá þá með 213 laxa, Hofsá 210. Þetta eru óþekkjanlegar tölur miðað við síðustu sumur, en vissulega hafa skilyrði ekki alltaf verið af hinu góða.

Þá er ekki úr vegi að nefna Miðfjarðará sem heldur uppi merki vestanverðs Norðurlands, 192 laxa vika og 628 komnir á land. Aðrar á svæðinu eru lakari þó að menn gleðjist yfir fjörbrotunum í Blöndu.

Loks nokkur orð um Rangársysturnar. Eftir óvenjulegt harðlífi þar lengi framan af, komu sterkar göngur í báðar árnar. Vikan í Ytri var 527 og 491 í Eystri. Þetta voru lang hæstu vikutölur sem finna mátti og eðli málsins samkvæmt var þá líka fín vikutala, 71, á Eystri bakka Hólsár. Gott rólið þar sem sagt og allir kátir. En eftir síðasta hörmungarsumarið þá er biðin eftir hverri vikutölu meira og meira spennandi…heldur veiðin dampi? Eru göngurnar búnar? Hvað, hvað, hvernig o.s.frv.