Með þessu innleggi er VoV eiginlega að lýsa eftir hverjum þeim sem kunna að þekkja, eða lúra á flugunum Blue Icelander og Green Icelander. Þessar flugur, sem voru gjöfular, reyndust ákveðnum hópi vel í Kjarrá fyrir nokrum áratugum, skv frábærri bók gömlu hestasveinanna.

Við erum búin að spyrja nokkra, m.a. þungavigtar hnýtara. T.d. Örn Hjálmarsson, sem hjálpaði okkur um árið með t.d. Cirillion Yellow Grub, Black Goldfinch og fleiri. En Örn kom af fjöllum og þá er fokið í flest skjól. Spurning hvort að einhverjir lifi enn sem eiga þessar flugur í eldri boxunum, sem sjaldan eru opnuð lengur. Við við biðlum til þeirra. En þetta sagði Stefán Þórarinsson „hestasveinn“ þegar við spurðum hann út í málið:
„Já, þetta voru flottar flugur, einkrækjur sem Burt Andreson hýtti. Ég á að eiga eitt eða fleiri eintök en hef ekki fundið enn. Burt sagði mér að Green Icelander flugan hefði verið hönnuð að hluta til með „Green professor“ í huga en hann notaði fluorsent efni í búkinn. Hin var ljósblá en líka með Mallard efni í vængnum. Ég veit að fleiri en ég áttu eintök en það er eins með þá og mig að þeir finna þær ekki.“
En flugan á myndinni?
Burt sagði mér að Green Icelander flugan hefði verið hönnuð að hluta til með „Green professor“ í huga en hann notaði fluorsent efni í búkinn. Hin var ljósblá en líka með Mallard efni í vængnum. Ég veit að fleiri en ég áttu eintök en það er eins með þá og mig að þeir finna þær ekki. Flugan á myndinni er Green Professor, silungafluga. Green og Blue Icelander voru svona, nema með grænu og bláu flúrósent í búknum. Báðar með mallard/stokkandarvængi.“
Eb-n fínt, ef einhver á eintök af þessum flugum, þá væri frábært að fá þær í flóruna, ekki satt?










