
…nema í Víðidalsá. Nokkrar opnuðu í dag, enda er 20.6 einn aðaldagurinn í laxveiðinni. 11 komu á land í Víðidalnum, en fókusinn var eins og oft áður á Elliðaánum. Þar var kynntur Reykvíkingur ársins, sem fékk að kasta fyrstur.
Viðkomandi var Jensína Edda Hermannsdóttir leiskólastýra til áratuga og eftir tilnefninguna við hátíðlega athöfn við veiðihúsið í Elliðaánum, var hún leidd að ánni með flugustöng. Jensína kann lítið fyrir sér í fluguveiði, en með aðstoð setti hún í þann fyrsta af laxasvæði árinnar 2026. En þó að lax og stórir birtingar hafi hafið göngur sínar fyrir all nokkru var sá fyrsti í sumar 30 cm urriði. Björg Magnúsdóttir forseti Borgarráðs veiddi hins vegar fyrsta laxinn, tæplega 80 cm hrygnu í Hundasteinum, sjá myndina sem við fengum að láni af FB síðu SVFR. Vart varð við fleiri laxa, ofar og neðar í ánni og var þetta nokkuð í stíl við aðrar opnanir, að laxar voru víða komnir langt upp í árnar og ekki endilega að veiðast á dæmigerðum „opnunarstöðum“.
Það á t.d. við um Laxá í Aðaldal þar sem tveir komu á land, báðir langt uppi í á. Enginn neðan við Æðarfossa. Sama sagan í Víðidalsá sem við nefndum fyrst hér í textanum.
Annars, Ytri opnaði með tvo fyrir hádegi, báðir fyrir ofan Ægissíðufoss og Vatnsdalsá var með tvo á fyrstu vaktinni e.h. í dag, en báðir þar á tíbískum stað, Hnausastreng.









