Silungsveiðin er í miklum blóma sem stendur og hvaðanæva að berast skemmtilegar fréttir. Veiðivötn, Arnarvatnsheiði, Skagaheiði, urriðasvæðin öll í Suður Þingeyjarsýslu, sjóbleikjuveiði norðanlands og austan. Og svo vötnin út um allar koppagrundir.

Ein er sú fluga sem merkilega oft hefur skotið upp kollinum að undanförnu og það er Wooly Bugger. Fregnir af góðum skotum á þessa flugu hafa m.a. borist okkur frá Hraunsfirði, Baulárvallavatni og sjóbleikjum á austanverðu landinu að ógleymdum Veiðivatnaurriðanum sem er sólgin í þessa flugu.Þá höfum við haft nýlegar spurnir af stórum urriða í Þingvallavatni sem vildi þessa flugu og enn fremur veiðimanni sem var á Arnarvatnsheiði og landaði á annan tug stórra urriða á olíugrænan Wolly Bugger. Eflaust eru uppákomurnar miklu, miklu fleiri.
En hver er þessi Wooly Bugger? Nafnið segir manni lítið því hún er hnýtt í svo mörgum litum, litasamsetningum og útfærslum að það kallar á nánari útskýringar þegar flugan er nefnd. Auk litadýrðar getur hún verið með venjulegan haus, vaskakeðjuhaus, kúluhaus, keiluhaus og kúpu! Þetta er fluga sem menn leika sér með.

Það segir hvað mestu söguna að einfaldlega skoða myndir af flugunni og birtum við hér tvær sem við fundum á Google. Þar má skoða hana í öllum stærðum og gerðum. Henni er þannig lýst að hún sé yfirleitt með marabou í stéli og ýmist glitþræði eða ekki. Leggurinn er oftast með chenile eða hárum sem eru reyrð niður með ýms konar vafningum. Stundum eru þeir úr blýi eða tungsten til að koma flugunni betur og hraðar niður. Algengust er flugan í olívu, brúnum og svörtum litum. En útfærslurnar eru óhemju margar eins og að framan var getið.
Svo er sagt að Wooly Bugger sé þróun frá Wooly Worm sem sjálf sé þróun frá Palmer flugunni bresku, en elsta útgáfa hennar nær aftur til tíma Isaak‘s Walton. Walton var uppi á sextandu öld og skrifaði klassíkina The Compleat Angler. Í dag líta margir á fluguna og segja eifaldlega, „þetta er Nobbler“, en þaðer augljóslega mikil einföldun.









