
Laxveiðiárnar tikka inn hver af annarri og þótt að sumar opnanir hafi verið nokkuð hressilegar er mál manna að um lakari byrjun sé að ræða en í fyrra. En við því hefði mátt búast. Athygli VoV er hins vegar á óvenjustórum sjóbirtingum, óvenju snemma.
Tökum sem dæmi mynd sem Kolskeggsmenn birtu í dag af svaðalegum birtingi sem dreginn var úr Hólsá að austan. Við fengum myndina lánaða og sjá má að þetta er enginn geldfiskur. Og svo voru fréttir af því frá Elliðaánum, af öllum stöðum, að sjóbirtingar í yfirstærð væru að skrá sig í teljarann. Sem vel að merkja, myndar þá og mælir. Einn var ræíflega 90 cm, fleiri milli 70 og 80 cm. Göngumynstur sjóbrtings í íslenskum ám hefur yfirleitt ekki innihaldið júnímánuð, utan að í köldum árum hafa þeir síðustu verið að hypja sig til sjávar fram í júní. Sjóbirtingurinn hefur víða verið í mikilli sókn og virst sækja í skörðin sem bleikjan skilur eftir sig, en henni hefur sem kunnugt er fækkað umtalsvert síðustu ár.
Þessir yfirstærðarbirtingar hafa sést í teljarakistunni áður og þeir virðast síðan bara hverfa. Koma a.m.k. afar sjaldan fram í afla og væri afskaplega gaman að vita hvar þeirra híbýli eru í ofanverðri ánni.

En laxinn? Nýlegar opnanir eru upp á 17 í Haffjarðará og 12 í Víðidalsá (þar af ellefu á fyrsta degi). Laxar eru að tínast upp úr Blöndu eftir hrapalega opnun og fyrstu laxarnir eru líka komnir úr Hrútunni og þar sáu þeir sem opnuðu laxa víða um svæðið. Jökla opnaði líka í dag, en menn höfðu varann á síðustu daganna því að afar mikið hefur rignt á austanverðu landinu. Enda hafði það áhrif á opnunardaginn, en Þröstur leigutaki sagði í kvöld: „Veiði hófst í Jöklu í dag en ljóst er að lax kemst ekki upp fyrir Steinbogann vegna þess hve Jöklan er vatnsmikil núna eftir úrkomuna sl. viku og mikillar snjóbráðnunar. Vart var við laxa neðar á neðsta svæðinu svo hann er mættur allavega og vatnið er fallandi svo það horfir til betra vegar næstu daga.“









