Milljón tré í lok sumars?

Six Rivers eru m.a. á kafi í skógrækt...mynd er frá Six Rivers.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að félagið 6 Rivers, í eigu Jims Ratcliffe, hefur staðið að margháttuðum rannsóknum við laxveiðiár á Norðausturlandi, ræktun, vöktun, veiðistýring og búsvæðabætur eru stærsti þátturinn, meðal búsvæðabót er skógrækt í næsta nágrenni áa.

Í frétt sem 6 Rivers hefur sent frá sér segir eftirfarandi:
Fyrir Íslandsbyggð og framan af öldum byggðar hér á landi  var mikið af landinu þakið birkiskógum og kjarrlendi. Það þvarr og hvarf að mestu næstu aldirnar. Hjá Six Rivers Iceland er unnið að því að endurheimta innfæddan gróður og endurheimt  kjarrlendis í viðleitni okkar til að bæta búsvæði ána, auka líffræðilegan fjölbreytileika og styðja við villtan Atlantshafslax. Tré og víðir hjálpa til við að sía vatn, draga úr sveiflum áa og bæta náttúrulegt orkuinntak í vistkerfi árinnar. Þetta eykur fæðuframboð  fyrir hryggleysingja sem laxaseiði eru háð. Frá árinu 2017 hafa meira en 750.000 tré verið gróðursett, með það að markmiði að ná 1 milljón trjáa sem gróðursett verða í heildina fyrir sumarlok.“
Þetta er metnaðarfullt og auðvitað umdeilt hjá einhverjum sem telja af einhverjum ástæðum nóg komið af skógrækt í landinu. En sé þetta til bóta fyrir búsvæði og lífríki laxveiðiáa, þá er ástæða til að fagna framtakinu.
Og, okkur hefur borist til eyrna að menn hugsi til þessa víðar. T.d. munu leigutakar Stóru Laxár í Hreppum vera með viðlíka plön á vinnuborðinu, en sá hópur hefur unnið mikið síðustu sumur og haust að koma laxi ofar í kerfið, nýta áður ónýtt búsvæði. Stóra Laxá hefur löngum þótt dyntótt og sveiflugjörn. Í kaldari kantinum. Vinna af þessu tagi getur því ekki verið annað en af hinu góða.