Haugur, fyrirtæki Sigurðar Héðins og Ingólfs Helgasonar snýst ekki bara um að selja veiðileyfi, þeir fá líka hnýttar sérlega vandaðar flugur eftir uppskrift þeirra frá Atlantic Flies, hnýtingarfyrirtæki Jóns Inga Ágústssonar í Thailandi. Meðal þeirra er ofurflugan „skáskorin“ Skuggi, sem er einkaeign Sigga, en svo er komin nýjung sem vert er að nefna „Glowing in the Dark“ eða bara Gló….einnig fluga frá Sigga, fluga sem hefur haus sem lýsir upp þegar rökkva tekur.
Siggi Haugur (Sigður Héðinn Harðarson) sagði okkur að þetta væri skemmtileg fluga og hefði komið skemmtilega á óvart, þeir félagarnir væru frekar hefðbundnir en alltaf til í að skoða nýjungar með opnum huga. Það hefðu þeir gert með þessar flugur og Siggi sagði: „Glowing In the dark Er frabrugðin öðrum flugun, en þegar þegar ljós er borið að kóninum þá kemur hann til með að lýsa í myrkri . Hefur það einhver áhrif á fluguna hvernig veiðist á hana, já það gerir það og þegar hún var prófuð í fyrra eftir miðjan ágúst, þá svinvirkaði hún og gaf marga fiska. Og það sem kom líka á óvart var hversu lengi það logaði á kóninum. Það sem var einnig merkilegt var að hún virkar líka mjög vel þegar það er mikil sól. en allavega er þetta skemmtileg viðbót í fluguflóruna og eykur úrvalið á haustflugum.“










