100 cm í Tungufljóti

Steingrímur með tröllið!

Það eru alltaf að gerast ævintýri á bökkum vatnanna og að þessu sinni lenti Steingrímur Sævarr Ólafsson í einu slíku. Sem hann mun aldrei gleyma, svo mikið er víst. Vettvangurinn er hin fræga stórfiskaslóð Tungufljót.

„100 sentimetrar! Þessi höfðingi gaf sig í Tungufljóti eftir langa, harðvítuga en stórskemmtilega baráttu. Frábær glíma við risann í tæpar tuttugu mínútur, persónulegt met sett og þriggja stafa múrinn rofinn í blíðskaparveðri og frábærum félagsskap. Þrímældur hængurinn, 100 sentimetrar sléttir og um 50 sm í ummáli! Er hægt að biðja um eitthvað meira? Lífið er gott,“ skrifar Steingrímur á FB síðu sinni. Óhætt að óska honum til hamingju!