Alls konar í gangi og Elliðavatn opnar

Appelsínugulur Nobbler er oft sterkur í Elliðavatni á vorin. Mynd Heimir Óskarsson.

Það hefur verið alls konar í gangi í allra handa silungsveiði síðustu daga, sérstaklega eftir að hlýna tók eftir kalda opnunardaga í byrjun mánaðar. Ís víðast hvar annað hvort farinn eða búinn að hopa verulega. Og fiskur tekur við sér.

Eitthvert alskemmtilegasta vorveiðisvæðið að okkar mati er Hólaá, sú er rennur úr  Laugarvatni, sameinast Hagaós, sem kemur úr Apavatni, og svo smella þær sér saman út í Brúará. Bæði IO Veiðileyfi og Veida.is eru með svæði í ánni á sinni könnu og höfum við heyrt góðan slatta af skemmtilegum veiðisögum frá ánni, m.a. eina sem segir frá erlendum veiðimönnum sem ætluðu í Villingavatn, sunnan Þingvallavatns, en það var áður en að ísinn tók þar upp. Leiðsögumaðurinn sem var á vegum Fish Partner gróf þá upp lausan dag í Hólaá. Vitum ekki alveg hvaða svæði, en þau eru öll góð. Nema, að þeir erlendu skemmtu sér hið besta, lönduðu á þriðja tug urriða sem voru allt að 3 punda fiskar. Og fengu meira að segja eina bleikju sem er ekki algengt svo snemma vors.

Þá hafa svæði Þingvallavatns opnast eitt af öðru t.d. Svörtuklettar og Kárastaðir. Urriðinn hefur gefið sig á báðum svæðum. En þó að halla taki nú á apríl þá er enn sjóbirtingur á sveimi. „Stóru“ árnar eru yfirleitt vel seldar, en fyrir þá sem vilja athuga með birting og borga kannski hálfan handlegg í staðinn fyrir einn eða einn og hálfan, þá býður Kolla í Veiðibúð Suðurlands upp á Laugardæli og Hraun í Ölfusá. Bæði svæðin hafa átt sín fínu agnablik í vor. Veida.is selur einnig í Hraun að okkur minnir og veida.is er einnig með Skálholtssvæði Hvítár. Í fyrra komu þar rífandi góð skot og eitthvað höfum við heyrt af slíku nú í vor. SVFR er með vorveiði í Leirvogsá og Úlfarsá, hérna rétt við túnfótinn á höfuðborgarsvæðinu og báðar hafa átt líflega daga. Sama má segja um silungasvæðið neðst í Hítará. Þá mætti kíkja eftir lausum dögum á sjóbirtingssvæði Grímsár í Borgarfirði hjá Hreggnasa. Sem er einnig með Skugga í Hvítá, en ekki víst að mikið sé laust þar. En það er feykilega flott veiðisvæði.

Börnin eru oft fjölmenn er Elliðavatnið opnar. Mynd Heimir Óskarsson.

Hátíð við opnun Elliðavatns

En á fimmtudaginn er stórhátíð, einn af stóru dögunum í „opnunum“, því þá verður skrúfað frá í Elliðavatni og er þar jafnan margt um manninn á opnunardegi. Fyrir einhverjum árum var farið yfir í að opna á Sumardaginn fyrsta og hann er einmitt á fimmtudaginn. Hefð er nú komin á að SVFR, Veiðikortið og Skógræktarfélag Reykjavíkur standi fyrir mikilli hátíð í tilefni dagsins. Hér kemur dagskráin, en menn þurfa ekki að einblína á hana, það má koma og fara hvenær sem er. Veiðikortshafar þurfa ekki að skrá sig, en leyfi eru seld á Elliðavatnsbænum, hafi menn ekki kortið.

En á vef Veiðikortsins stendur: „Dagskráin verður í höndum fræðslunefndar SVFR auk Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem margt skemmtilegt og fræðandi verður í boði fyrir börn og fullorðna. Aðilar frá SVFR verða veiðimönnum innan handar og veita góð ráð milli 11-13. Hvetjum alla til að taka með sér veiðistangir. Þeir sem vilja taka þátt í skemmtilegum pödduratleik mega taka með sér krukku og sílaháf en eitthvað verður þó til á staðnum. Veiðifélag Elliðavatns býður upp á veiði í vatninu meðan hátíðin stendur yfir.

Dagskrá:

Kl. 10:00 – 11:00 Veiði og lífríki Elliðavatns
Caddisbræður og Óli Urriði verða með sína árlegu fræðslukynningu og umræðu. Sérstakir Elliðavatnssnillingar verða á svæðinu.

Kl. 11:00 – 12:00 Skógarþrautir
Skógarþrautir með Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Varðeldur og sykurpúðar ef gróður verður ekki of þurr.

Kl. 12:00 – 13:30 Veiðihátíð krakkanna
Kl. 12:00 Fræðsluefni fyrir börn á myndrænu formi sem er unnið af Tökustuð.
Kl. 12:30 Lífríkið skoðað, léttur og skemmtilegur ratleikur við Elliðavatnsbæinn.
Kl. 13:00 Grillaðar pylsur.

Skemmtilegir leikir fyrir börnin með vinningum.“

Það er aðallega urriðinn sem gefur sig í vatninu svona snemma vors og hafa smáar straumflugur verið líklegar, t.d. appelsínugul og ólívugrænir Nobblerar. Þar sem urriðinn er svona mikið í sílastandi, þá mætti prófa að leyfa ungviðinu að kasta litlum spinnerum. Eða flugu í flotholti ef að börnin eru ekki klár í fluguköstin. Aðalmálið að taumur sé langur.