Líf og fjör við opnun Elliðavatns

Þetta er ekki hvað síst barna- og fjölskylduhátíð. Mynd Ingimundur/Veiðikortið

Elliðavatn var opnað í dag, á Sumardaginn fyrsta eins og hefðin býður. SVFR, Veiðikortið og Skógræktarfélag Reykjavíkur hafa síðustu árin staðið fyrir mikilli sumarhátíð þar í tilefni dagsins. Og enginn var svikinn.

Þar var vel mætt á fyrirlestra sérfræðinga um lífríkið og veiðina. Mynd Ingimundur/Veiðikortið

Margir tóku daginn snemma, en það var hrollkalt í morgunsárið, aðeins 4-5 stiga hiti og nokkur gola sem kældi enn frekar. En svo hýnaði þegar leið á morguninn og kom inn í daginn. Menn voru að setja í fiska, nær eingöngu urriða sem hefur nú um nokkurt árabil verið aðalfiskurinn í vatninu. Mikið þar af fallegum 1-2 punda fiskum og stöku stærri fiski í bland. Það voru þeir hörðustu sem mættu eldsnemma en svo tíndist vaxandi fjöldi þegar leið á morguninn og daginn, ekki hvað síst ungviðið og fyrir utan að veiða með pabba og mömmu var heil dagskrá fyrir krakkana.

Þrír flottir sem Geir Thorsteinsson landaði í morgun. Myndasmiðurinn er hann sjálfur.

Það er mikill fiskur í vatninu og margir gerðu góða ferð frá sjónarhóli aflabragða. Við stungum okkur t.d. á FB síðu Geirs Thorsteinssonar, sem er mikill Elliðavatnssérfræðingur, og rændum þar mynd sem hann birti af þremur fallegum urriðum sem hann veiddi, eflaust úti á „Engjunum“, en einnig missti hann tvo. Og hann var ekki einn um að fara heim með í soðið. En fyrir utan hversu skemmtilegt veiðivatn Elliðavatnið er, þá ber að taka ofan fyrir fyrrgreindum aðilum sem standa að því að gera þennan opnunardag að sannkölluðum viðburði.