Það varð uppi nokkur fótur og fit á dögunum þegar á daginn kom að samningur SVFR við veiðifélag Laxár og Krákár nyrða væri ógildur. Allt fór í óvissu um framtíðina. En nú skylst okkur að óvissunni sé eytt og meira til.
Sem sagt, okkur barst til eyra í morgun að búið væri að ganga frá nýjjum samningi sem allir eru sáttir við og geta þá fastagestir svæðanna í Mývatnssveit og Laxárdal glaðst. Þetta sem við kölluðum „meira til“ er síðan, að SVFR var einnig að ganga frá framhaldandi samningi um Miðá í Miðdölum (Í Dölum). Hún er gjöful og vinsæl hjá SVFR og því gleðiefni fyrir félagið og viðskiptavini að þar heldi allt áfram með óbreyttu sniði….eða kannski eki alveg óbreyttu, því framvegis verður flugan eina leyfilega agnið.










