Vikan var bland í poka að þessu sinni, Ytri að venju með lang besta aflann en miklu minna samt heldur en eftir stóru vikuna á undan. Miðfjarðará enn og aftur mjög góð, annars staðar þokkalegt til þreytt.
Þar sem talsvert er af laxi veiddist þokkalega, enda hefur vatnsbúskapur víða batnað nokkuð eftir endalausa þurrka sumarsins. Bjart veður með kulda kvölds og morgna hefur þó haft sitt að segja, þ.e.a.s. stytt veiðimöguleikana þó að sagt sé að kuldanætur, sérstaklega frostnætur, komi fiski af stað sem hefur legið lengi aðgerðarlítill. Veðurfarið að undanförnu speglaðist því víða aftur í aflatölum síðustu viku. Enn fremur sá árstími sem nú fer í hönd.
Það má sjá eitt og annað í tölunum. Þetta er farið að taka á sig mynd, enda lítið eftir. Nokkrar lokatölur eru þegar komnar, sbr frétt okkar í gær. Á Suðvesturlandi upp í Borgarfjörð hafa smálaxagöngur verið í lagi og veiðin yfirleitt í góðu lagi á heildina litið og víða betri en á sama tíma í fyrra. Vatnsbúskapurinn þar batnaði með haustinu og vikutölurnar voru nokkuð góðar se tillit tekið til að farið er að hausta.

Norðanlands og Norðaustan hafa flestar árnar í besta falli verið þokkalegar, jafnvel slakar sumar hverjar. Mun minna af stórlaxi en í fyrra og smálaxinn var seinn að skila sér. Má jafnvel segja að smálaxagöngurnar hafi verið beinlínis kraftlausar það sem af er og rætist varla úr héðan af. Eins og Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár sagði við okkur fyrir skemmstu: „Þetta voru aldrei eiginlegar göngur, fiskur bara reyttist inn.“ Miðfjarðará og Laxá á Ásum bera sem fyrr höfuð og herðar yfir aðrar ár á þessum slóðum og vikuveiðin í þeim langt yfir því sem sjá má í öðrum ám á svæðinu.
Í Vopnafirði, þar sem verið hefur niðursveifla síðustu sumur, kætast menn helst vegna þess að ástandið er ekki lakara en í fyrra, bæði Hofsá og Selá hafa gefið meira en á sama tíma í fyrra og ástandið almennt heldur betra en í fyrra. Sérstaklega á það við um Selá sem var með frekar slaka viku að þessu sinni aldrei þessu vant nokkrumf iskum lakari en Hofsá.
Lítið hefur ræst úr í Fnjóská og Svartá. Þá er varla hægt að segja að Breiðdalsá hafi mikið lagast þó að blandað agn hafi skilað nokkrum á land. VoV minnist þess varla öll þau ár sem við höfum fylgst með og unnið úr tölum angling.is, að heill mánuður í veiði skili aðeins tveimur löxum. Þeir urðu þó 46 síðustu tvær vikurnar og áin náði með því þriggja stafa tölu með naumindum, lak í 101 lax.
Á Suðurlandi er þetta rólegt nema í Rangánum. Það á þó aðallega við um Ytri Rangá, en þó hafa verið boðlegar veiðitölur í Eystri Rangá síðustu vikur eftir að hún hrökk í gang seint um síðir. Kíkjum á árnar, hverja fyrir sig og í sviga á eftir hverri vikutölu má sjá hvernig undangengnar vikur gengu.
Ytri Rangá. Góð vika þar, með 471 lax (1006, 364, 472, 865, 594,717, 668, 332, 205 og 215 laxar). Áin þá komin í 6079 laxa en hafði gefið 7428 stykki á sama tíma í fyrra. Munar aldeilis enn um hinar mögnuðu stórlaxagöngur í fyrra.
Miðfjarðará. Vikuveiðin var mjög góð, eina ferðina enn, eða 231 lax (302, 269, 282, 213, 321, 424, 256, 453, 298, 180 og 101). Magnað hvað áin heldur háum standard, segjum við eina ferðina enn. Áin fór í 3470 laxa á 10 stangir, en 3948 laxar höfðu komið á land á sama tíma í fyrra. Þetta er jú umtalsvert lakari tala en í fyrra, en samt mjög góð útkoma sérstaklega m.t.t. erfiðra skilyrða næstum allt sumarið.
Þverá/Kjarrá. Vikan var nokkuð góð, m.t.t alls, 99 laxar (132 ,113, 177, 134, 73, 81,74, 237, 345, 248 og 152). Vatnsbúskapur allur skárri heldur en fyrir örfáumvikum síðan. Alls voru komnir 2121 lax á land á miðvikudagskvöldið, en á sama tíma í fyrra voru þó komnir 1902 laxar á land þannig að áin er enn yfir veiði sama tíma í fyrra og stefnir í ágætis heildartölu. Þverá/Kjarrá er skráð með 14 stangir.
Eystri Rangá. Smá jójó á Eystri, frekar dauf núna, betri þar á unda, dauf þar á undan osfrv. Gaf núna 75 laxa (135, 88, 284, 310, 419, 334, 137, 56, 47, 66 og 22). Áin fór í 1983 laxa, en sama tala í fyrra var 3050 laxar.
Norðurá. Vikan var stutt og þokkaleg, en veiðum lauk þann 11.9. Þessi skerta vika gaf 59 laxa (220, 87, 54,74, 53, 80, 129, 172,219, 184 og 158) Alls voru á miðvikudaginn komnir 1719 laxar í bók. Í fyrra var sama tala lokatalan 1342 laxar, sem sagt mun betra nú en í fyrra. Norðurá er skráð hjá angling.is með 12 stangir.
Langá. Langá mallar í svipuðu fari og síðustu vikur, gaf nú 77 laxa (69, 77, 88, 75, 111, 90,142, 199, 201 og 170 vikurnar á undan) Heildartalan komin í 1460 laxa og var á sama tíma í fyrra 1229 laxar. Það stefnir því í betri vertíð þetta sumarið í Langá, haft er fyrir satt að þar sé mikið af fiski og ef að rignir fyrir vertíðarlok gæti orðið mikil og góð veisla. Langá er skráð með tíu stangir.
Blanda. Blanda er fyrir nokkru komin á yfirfall með tilheyrandi gæðahruni í veiðiskapnum. Vikan nú gaf einungis 3 laxa (13, 27, 59, 112, 145, 161, 168, 231,143 og 102), og má sjá að þetta er að fjara út. Heildartalan er komin í 1433 laxa. Á sama tíma voru komnir 2356 laxar á land. Blanda var skráð með 4 stangir framan af á angling.is, en mest allt sumarið hefur verið veitt á 14 stangir.
Haffjarðará. Vikan var skert þar sem veiði lauk 12.9. Var rólegt og nánast eins og vikurnar á undan, eða 37 laxar (45, 52, 53, 68, 104, 138, 123, 127,152 og 84). Áin fór í 1167 laxa og er það lokatala sem fyrr segir. Í fyrra var veitt viku lengur og endaði áin þá með 1280 laxa. Haffjarðará er skráð með 6 stangir.
Grímsá. Vikutalan í Grímsá dalaði aðeins miðað við vikuna á undan, gaf núna 68 laxa (85, 50, 74, 56, 101, 93, 91,142,128 og 112). Grímsá hefur löngum haldið vatni betur en flestar ár í héraðinu og það skilar sér, en nú haustar að og tölurnar bera það með sér. Áin er nú komin í 1121 lax en sama tala í fyrra var 512 stk, Grímsá er því einn af sigurvegurunum þetta árið. Grímsá er skráð fyrir 8 stöngum.
Laxá á Ásum. Hefur verið fremur lífleg sérstaklega ef miðað er við ár í sama landshluta, og vikan var sú besta í langan tíma, gaf 115 laxa (72, 80, 64, 89, 101, 98,63, 133, 107, 79 og 31). Áin var í gærkvöldi með 1057 laxa, en 596 laxar voru í bók á sama tíma í fyrra. Laxá er skráð með fjórar stangir.
Norðlingafljót. Áin sú arna hefur allt annað eðli en aðrar ár sem hér eru teknar fyrir. Alkunna er að ólaxgengt er í Fljótið, en hafbeitarlax úr Hafnará er fluttur í ána og veiddur á stöng. Vikutalan í Fljótinu var slök að þessu sinni, 43 laxar (87, 116, 142, 293, 133, 55). Ágætis veiði í það heila samt. Stendur nú í 936 löxum en sambærileg tala frá fyrra ári liggur ekki fyrir. Var þó til muna lakari.
Selá. Slök vika í Selá, en miklar sveiflur hafa verið í vikutölum árinnar og kann að fara bæði eftir aðstæðum og veiðimönnum. Vikan gaf 24 laxa (68, 23, 128, 67, 93, 135, 123, 110, 95 og 27 í vikunum á undan). Heildartalan nú 928 laxar en var ríflega 800 á sama tíma í fyrra. Þetta er því betra en í fyrra. Sex stangir í Selá.
Elliðaárnar. Veiðin var svipuð og í vikunni á undan. Alls kom 21 lax á land (25, 66, 23, 36, 58,70,102, 130, 107 og 110). Heildartalan núna 876 laxar en var 675 á sama tíma í fyrra. Elliðaárnar voru með fjórar stangir framan af,en sex stangir að undanförnu.
Víðidalsá. Ekki sérlega gott í Víðidalnum, enn og aftur. Vikutalan þó örlítið skárri en þar á undan, eða 51 lax (36, 20, 41, 60, 38, 72, 57, 85, 82, 76 og 55) Heildartalan hennar nú 690 laxar en var 990 laxar í fyrra. 8 stangir eru skrifaðar á Víðidalsá.
Laxá í Aðaldal. Vikutalan hennar var aftur mjög slök, aðeins 17 laxar (39, 44, 33, 49, 57, 70, 57, 146, 71 og 39), vikurnar í seinni tíð keimlíkar og í heild slakt og ekki batnandi, þvert á móti. Bót í máli að nú ber á því að risahængarnir séu farnir að verja óðul sín af vaxandi grimmd. Sem þýðir bara eitt.Í gær var áin í 683 löxum, en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 1165 stykki.
Laxá í Kjós. Harðlífi þar eins og verið hefur undanfarnar vikur, og vikan nú sú slakasta með aðeins 14 laxa (40, 42, 17, 30, 31, 58, 69, 93, 61, 114, 45). Laxá er talin eiga mikið inni og meira sé af laxi í henni en í fyrra. Áin er komin með 645 laxa, en á sama tíma í fyrra hafði 422 verið landað. Þrátt fyrir þessi vandræði er áin því samt betri en í fyrra.
Vatnsdalsá. Svipað þar og verið hefur. Vikan gaf 35 laxa (39, 41, 41, 40, 55, 102, 52, 65, 42, 48 og 34). Áin færðist upp í 610 laxa. Sambærileg tala frá síðasta ári var 758 laxar. Sex stanga á.
Laxá í Dölum. Átti mjög sæmilegustu viku, alls 68 laxar (91, 35, 39, 85, 47, 38, 84, 33, 56 og 25). Þurrkar hafa skemmt mjög fyrir í Laxá eins og víðar en ástandið hefur batnað nokkuð. Alls eru núna 612 laxar komnir á land, en sama tala í fyrra var 1225 laxar. Fjórar stangir í ánni.
Laxá í Leirársveit. Dalaði aftur, gaf 35 laxa (58, 54, 18, 11, 31, 47, 80, 64, 61 og 54). Heildartalan er 555 laxar en var 372 á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir hremmingarnar er áin því engu að síður með talsvert betri tölu en í fyrra!
Hofsá. Veiðin er ívið meiri en í fyrra og meira talið af fiski í ánni og betur dreifður. Vikan var þó aftur slök, eða aðeins 30 laxar (15, 38, 67, 55, 67,93, 46, 59, 40 og 35). Alls þá komnir 545 laxar á 6 stangir, en sama tíma í fyrra hafði 465 löxum verið landað.
Hítará. Önnur mjög slök vika, tvær þá í röð, eftir góðan kipp þar á undan, en vikan nú gaf 9 laxa (11, 64, 22, 45, 17, 50, 67, 73, 49, 23 og 10). Með þessu færðist hún upp í 459 laxa, en í fyrra var hún með 779 laxa á sama tíma. Fjórar stangir eru skráðar á Hítará.
Haukadalsá. Svipað og í vikunni á undan, en vikutalan nú var 39 laxar (38, 18, 28, 38, 36, 38, 54, 48, 33, 41 og 27). Áin hefur gefið 454 laxa. Á sama tíma í fyrra voru komnir 1003 laxar úr ánni. Fimm stangir.
Flóka. Þar var aftur róleg vika með 13 laxa í bók (18, 29, 21, 20, 22, 17,22, 47, 51 og 83). Hefur verið á þessu sama rólega róli síðustu vikurnar og er orðin þreytt. Áin er samt komin í 401 lax, en 344 laxar voru komnir á sama tíma í fyrra. Betra, þrátt fyrir drómann. Þrjár stangir.
Þverá í Fljótshlíð. Þar gekk bærilega og vikan gaf 24 laxa (34, 47, 32, 69, 63 og 74 laxar í fyrri vikum, fleiri vikur ekki til staðar á angling.is). Áin fór þá í 389 laxa en var með 250 á sama tíma í fyrra. Býsna góð vertíð í Fljótshlíðinni.
Skjálfandafljót. Hér er átt við neðri svæðin. Vikutalan hennar var með þeim hætti að verra verður það varla, en samt var hún betri en vikuna á undan, eða 6 laxar (0, 2, 7, 43, 80, 55,25, 60, 35, 22, 21)Þar með hafa veiðst 378 laxar á svæðinu og er það lokatalan í ár. Síðustu þrjár vikurnar voru aðeins skráðir 8 laxar og 15 ef þeirri fjórðu er bætt við. Þetta fjaraði því all hressilega út í Fljótinu eftir bærilegar vikur framan af. Lokatala i fyrra var 404 laxar
Straumfjarðará. Róleg vika í Straumu að baki, aðeins 10 laxar (65, 37, 8, 21, 9, 25, 44, 51, 16, 42 og 18). Hún er núna með 346 laxa á þrjár stangir en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 330 laxar.
Jökla. Núll í Jöklu þessa vikuna og nú eru sveiflur milli vikna. Gæti farið eftir ástundun. Áin gaf nú engan lax (13, 29, 10, 53, 60, 35, 50, 50, 18 og 12). Alls 330 laxar en í fyrra voru þetta 548 laxar á sama tíma.
Hrútafjarðará. Besta vikan í nokkurn tíma í Hrútu, alls 59 laxar (31, 25, 33, 22, 93, 32,10, 45, 13). Áin þá komin með 325 laxa en var með 460 á sama tíma í fyrra.
Svalbarðsá. Dalaði verulega frá fyrri vikum, gaf nú 11 laxa (17, 46, 30, 41, 16, 52, 31, 32 og 16 laxar). Áin þá komin í 316 laxa, en tala yfir ána á sama tíma í fyrra var 341 lax. Þrjár stangir.
Búðardalsá. Vikuveiðin nú var 17 laxar, vikan var skert þar sem áin var lokuð þann 11.9. (28, 11, 23, 23, 20 og 21 lax(ar) í fyrri vikum). Áin fór þar með í 255 laxa í sumar og er það lokatala.
Affall. Affallið var með viku upp á aðeins 8 laxa (15,22, 37, 24, 26 laxar í fyrri vikum). Heildarveiðin er nú 161 lax, en 592 höfðu veiðst á sama tíma í fyrra.
Svartá. Sama deyfðin yfir Svartða og vikan gaf aðeins 7 laxa (6, 4, 2 ,12, 25, 11, 15, 9, 17, 6 og 5) Veitt á fjórar stangir. Áin þá komin í 117 laxa en í fyrra höfðu 342 laxar veiðst á sama tíma.
Fnjóská. Slök sem fyrr. Eiginlega bara léleg, eða jafnvel ónýt, hvað sem veldur. Vikan nú gaf aðeins 4 laxa (15, 10, 7, 12, 14, 12, 4, 7, 6 og 7 laxar). Alls frá opnun 103 laxar en voru 172 á sama tíma í fyrra.
Breiðdalsá. Alls 21 lax síðustu viku (25, 0, 0, 2,0,10, 10, 8 og 12). Menn þakka þessa 46 laxa veiði síðustu tvær vikurnar að blandað agn var aftur á matseðlinum í ánni, en margir umræddra laxa munu hafa veiðst á spón. Veitt á sex stangir. Alls kominn 101 lax á land, en á sama tíma í fyrra voru 360 laxar komnir á land.










