Stórhuga í endurbyggingu Skógár

Skógá er kannski þekktust fyrir hinn fagra Skógafoss.

Það eru stórhuga framkvæmdir í gangi við að koma Skógá aftur á kortið sem laxveiðiá í háum gæðaflokki. Í fyrra kom fyrsti afrakstur seiðasleppinga og núna er stórt og nýtt veiðihús í smíðum.

„Þetta er allt í vinnslu, búnir með jarðvegsskiptin og sökklar klárir. Því miður er byggingarfulltrúinn í fríi þannig að það tefst í einhverja daga að fá flutningsheimild. En þegar það er komið í höfn munu hlutirnir gerast hratt,“ sagði Ásgeir Arnar Ásmundsson leigutaki árinnar í samtali við VoV.

Þá var hann með lið með sér í vikunni að grafa út rás í ósinn til að greiða fyrir laxagöngum. „Áin er jafnan sein til og við opnum t.d. ekki fyrr en 20.júlí. Samkvæmt reynslunni ætti þá að vera kominn lax að sögn Ásgeirs, en hann var með ána á leigu í ein 10-12 ár á árum áður og kom henni í háar tölur. „Það verður spennandi að fylgjast með gangi mála í sumar, það sást varla eins árs hrygna í aflanum í fyrra og því viðbúið að það verði þeim mun meira af stórum tveggja ára hrygnum í sumar,“ bætti Ásgeir við.

En veiðihúsið. Það er 150 fermetrar og því ærið pláss við fjórar útseldar stangir. Húsið verður staðsett við svokallaðan Geirastreng sem er um hálfan kílómeter neðan þjóðvegar að vestanverðu. Vegna ákveðinna tafa verður það að öllum líkindum ekki tilbúið í byrjun vertíðar 20.7, en stefnt er að því að allt verði klappað og klárt um mánaðamótin júlí/ágúst.