Helgi Þórðarson, sem kennir sig við Reiðari öndina, flugugræjufyrirtæki sem hannn rekur, greindi fyrir skemmstu frá einstaklega skemmtilegri uppákomu á bökkum Vatnsdalsár

Gefum Reiðari öndinni orðið: „Vatnsdalurinn geymir marga gersemar, fallega veiðistaði einstaka náttúru, gott fólk og krafta sem erfitt er að útskýra. Ein af þessum gersemum er okkar allra besti Ágúst H Sigurðsson leiðsögumaður og lífskúnstner. Gústi eins og við köllum hann fagnaði stórum áfanga um daginn og standa hátíðarhöldin enn yfir. Gústi gerði eitt stórkostlegt fór að veiða í veiðistaðnum Gústa og með fluguna Gústa og landaði laxi. Hefur þetta verið gert áður ?










