Iðandi ormur – kostað

Hér eru nú herlegheitin....

Vesturröst hefur síðustu árin selt vægast sagt umdeilda flugu sem menn hafa ýmist kallað „ekkiflugu“ eða jafnvel agn sem ætti að banna, þar sem menn væru að reyna að pota sér áfram þar sem maðkveiðibann er í gildi. Squirmy Wormy heitir fyrirbærið og Vesturröst er nú farið að selja þessa „flugu“ Í 6-8 flugu pökkum í ýmsum litum. Fær þær vandaðar frá Atlantic Flies.

Komin í nýjar pakningar!

Þessi fluga kom fram á miðjum síðasta áratug þessarar aldar í Bandaríkjunum. Hnýtingarnördar eru alltaf að horfa á alls konar með þeim augum hvort að það passi kannski í sniðuga flugu. Einhver í þeirra hópi rak augun í gúmmígæludýr fyrir börn sem var með þéttriðið skegg af bleikum gúmmíormum. Þar með var flugan hnýtt, barnaleikföngin hreinsuðst úr hillunum og Squirmy Wormy varð til.

Hún er mjög einföld. Þú tekur einn bleikan gúmmíorm og hnýtir hann fastan um miðjuna á flugukrók sem er oftast nr 10 til 12. Einn anginn nær aftur fyrir öngulbuginn, hinn endinn fram fyrir. Sumir tala um gervimaðk og jah, sumir segja að þetta sé ekki fluga, en síðustu ár hafa verið ótal deilur um hvað sé fluga og hvað ekki. Nærtækasta dæmið er að enn er deilt um hvort að túpur séu flugur eða ekki. Dæmi hver fyrir sig að sjálfsögðu, en hvað túpur varðar þá er víða tekið fram að notkun kaststanga sé óheimil í ám þar sem fluguveiði er eingögnu leyfð. Þar er augljóslega vegið að túpufugum. Nú er sums staðar gengið svo nærri kortleggingu flugna að tví- og þríkrækjur eru bannaðar og jafnvel ætlast til þess að aðeins séu notaðar einkrækjur með engu agnhaldi, eða þá niðurklipptu agnhaldi.

En það er alveg hægt að segja að Squirmy Wormy sé eftirlíking af ormi. Flugur eru oft eftiríkingar af einhverju sem menn telja að örvi fiskinn til töku. Frances er t.d. eftirlíking af rækju. Ingólfur Kolbeinsson í Vetsurröst segir að hann hafi notað Squirmy Wormy af og til síðustu ár og vissulega veitt af og til vel á hana, en ekki á þann hátt að hún hafi gert allt brjálað og hver fiskurinn af öðrum tapað glórunni. Margar sögur eru hins vegar til um fágæta hæfði þessrar flugu til að brjóta allt upp þegar tregt er. Mjög margar sögur

Þeir sem forðum bjuggu þessa flugu til, Amerísku nördarnir, telja best að sökkva henni, annað hvort með blýkúlu eða nota dropper sem er þyngdur. Reynslan hér á landi kallar ekki endilega á svoleiðis úrræði þó að það geti gengið. Og upprunalega var hún bleik. Svo kom rauð og síðan fleiri litir.

Ingólfur segir að bleika hafi reynst best, sú rauða einnig, en minni reynsla sé komin á aðra liti. Hann segir líka að lengi vel hafi verið ákveðið feimnismál að nota Squirmy Wormy. Hjá þeim í Vesturöst hafi hún lengi verið í litlu boxi við hliðina á flugubarnum. Svo komu menn og völdu hinar og þessar laxaflugur, en þegar lítið bar á dýfðu þeir hendi í SW boxið, veiddu upp 6-8 stykki og laumuðu því með. Þetta gæti verið jólagjöf veiðimannsins í ár, töfrafluga sem getur gert gæfumuninn.