Angling.is birti sínar fyrstu vikutölur í gær, 21.júní og er smá mynd komin á upphaf laxavertíðarinnar. Þó er ekki búið að opna allar árnar og sumar aðeins verið opnar í stuttan tíma. Á heildina litið er útlitið alveg þokkalegt, lax var kominn snemma, en allt hvílir nú á smálaxagöngum.

Fyrstu árnar til að opna eru eðli málsins samkvæmt komnar með hæstu heildartölurnar. Hér koma þær með stangarfjölda innan sviga.
Urriðafoss 160 (4)
Norðurá 128 (15)
Þverá/Kjarrá 77 (14)
Brenna 28 (2)
Haffjarðará 28 (6)
Blanda 26 (8)
Miðfjarðará 25 (10)
Víðidalsá 22 (8)
Eystri Rangá 20 (18)
Hítará 19 (6)
Þetta eru tíu efstu skv lista angling.is. Áin í ellefta sæti þar er Flóka sem er komin með 14 laxa á þrjár stangir. Stangarfjöldaviðmiðið er ekki alveg komið í umferð þar sem árnar með mikinn stangarfjökda eru tæplega orðnar virkar á öllum svæðum. Þó er eitt „usuall suspect“ með sitt á hreinu, Urriðafossinn.
Um þessar mundir er mjög hár straumur og smálax hefur verið að ganga víða í bland við eldri og stærri laxinn. Verður gaman að fylgjast með framvindunni.










