Veiði hófst í Laxá í Aðaldal í dag og voru viðstaddir sáttir við gang mála. Nokkuð er síðan að nokkur fiskför sást fara upp ána. Tveir komu á land.

Annar þessara laxa var 93 cm dreki sem tók HKA Sunray á Mjósundi. Hinn var glæsileg 84 cm hrygna sem tók hálftommu Skugga í Veiðistaðnum Staurinn.










