Blanda líka komin á yfirfall

Blanda
Glímt við lax í Blöndu. Nú er komið yfirfall.

„Jú það passar, Blanda er líka komin á yfirfall“ sagði höskuldur Birkir í samtalið við Vov, en nýlega greindum við frá yfirfalli í Jöklu. Þær haldast gjarnan í hendur þó að þær hafi sitt hvort lónið sem fyllast smátt og smátt. Ekki má gera ráð fyrir háum tölum í Blöndu héðan af.

Blanda  hefur hefur sem sagt einnig þessa hengingaról hangandi yfir sér, hún hefur verið í mikilli lægð síðustu árin, en verið að sýna merki um bata í sumar. Skv tölum angling.is frá 31.8 höfðu þá veiðst 566 laxar, en allt síðasta sumar, eða fram að yfirfalli var aflinn einungis 418 laxar. Sjálfsagt hefur hún náð að bæta einhverjum löxum við áður en yfirfallið reið yfir, það kemur í ljós þegar angling.is birtir nyjar tölur n.k. fimmtudag. En það er kominn haustbragur á veiðina.