Sjóbleikjan farin að veiðast með ströndinni

Myndin hans Arnar úr Hraunsfirðinum. Þetta á eftir að smakkast vel. Myndin er fengin af FB síðu Arnars Hjálmarssonar.

Á meðan að laxveiðin gutlar af stað af mikilli ró (nema kannski við Urriðafoss), þá hefur silungsveiði víða verið góð og vötnin að koma æ  betur inn í myndina. Og sjóbleikja farin að veiðast með ströndinni.

Sem dæmi um sjóbleikjuna má nefna Hraunsfjörðinn með vísan í myndina sem við fengum lánaða af FB síðu Arnar Hjálmarssonar, hins ötullega fluguveiðimanns og fluguhnýtara. Hann merkti þessa mynd með orðunum; morgunstund í Hraunsfirði. Hann gefur upp flugurnar Golden Eye, PT og Krókinn, með kúluhausum. Fleiri fregnir höfum við fengið úr Hraunsfirðinum sem er eins og margir vita saltur sjór.

Enn fremur höfðum við spurnir af veiðimanni sem átti erindi Til Ísafjarðar fyrir skemmstu. Hann gaf sér góðan tíma því ætlun hans var að stoppa hér og þar, þar sem ætla mætti að leyfilegt væri, og kasta fyrir sjóbleikju í sjónum. Hafði stutta kastsstöng með litlum spinner tilbúna í skottinu. Lét hnéstígvél duga, enda kastaði hann einungis frá klöppum. Stoppin voru nokkur hér og þar, mest á sunnanverðum Vestfjörðunum og Barðaströndinni. Afraksturinn var 12 stykki, sem flestum var sleppt, enda mest til gamans gert, en þrjár fóru alla leið vestur með honum og enduðu væntanlega á grillinu. Sambærilega sögu heyrðum við í vikunn úr austanverðum Eyjafirði. Þetta er skemmtileg veiði, en gæta verður þess að aka upp að sveitabæjum og athuga með leyfi.