Ein umtalaðasta fluga liðinnar vertíðar var ekki ný af nálinni. Henni hafði þo verið haldið nánast leyndri um árabil. Þetta er Zelda og Veiðislóð bað höfundinn Kjartan Antonsson, að segja okkur frá flugunni og krydda með nokkrum sögum.

Zelda
Enn einn Zeldulaxinn….

„Hugmyndina að Zeldunni fékk ég fyrir mörgum árum. Þá var uppstream aðferðin með púpum og tökuvara að ryðja sér til rúms hér á landi. Á þeim tíma veiddi ég mikið í Soginu fyrir landi Bíldfells. Þegar lítið eða ekkert gekk að fá laxinn til að taka skipti ég oft yfir í upstream aðferðina og reyndi við stóru bleikjuna. Þá var í miklu uppáhaldi, og er enn, púpan Moli. Ég reyndar var ég alltaf með dropper og Molinn var alltaf önnur púpan sem var undir.

Ég mun aldrei gleyma fyrsta laxinum sem ég fékk með upstream aðferðinni. Þá hélt ég að ég hefði sett í svakalega bleikju. Þegar upp var staðið landaði ég 8 punda nýrunninni hrygnu sem hafði tekið Molann. Eftir að hafa fengið nokkra laxa á þessa aðferð, alla á Molann, gerjaðist með mér sú hugmynd að uppfæra Molann í hefðbundna laxaflugu. Þó það sé með sanni hægt að segja að ekkert sé hefðbundið við Zelduna eða hugmyndina að henni. Ég gerði 4 útgáfur að Zeldunni og ein af þeim var með gráa efninu sem var í Molanum.

Zelda, Kjarrá
Þessi 78 cm hrygna úr Kjarrá tók Zeldu hnýtta á einkrækju. Mynd Einar Falur.

Þegar ég reyndi Zelduna í fyrsta skipti í Norðurá setti ég í 10 laxa og landið 6 af þeim. Sá fyrsti tók fyrir neðan Glitstaðabrúna. Engan fékk ég þó laxinn á þá gráu þó ég hefði tölvert reynt. Allir komu þeir á Zelduna sem ég kalla orginalinn, svört með grænum botni. Fyrstu Zeldurnar voru frekar klunnalegar og tölvert frá því sem þær eru í dag. Í dag samsvarar hún sér betur og hef ég gert nokkrar útgáfur af Zeldunni sem allar hafa reynst vel.

Þess má geta að Fulling Mill, sem er virt fyrirtæki í fluguveiðibransanum, byrjaði að framleiða og selja Zelduna í samráði við mig síðasta vor. Tjáðu þeir mér frá Fulling Mill að aldrei áður hafi það gerst að fluga á sýnu fyrsta ári hefði slegið jafn mikið í gegn og Zeldan. Fullyrtu þeir við mig að Zeldan hefði verið best seller hjá þeim hefðu þeir haft undan að framleiða en það hefði aldrei gerst áður í langri sögu fyrirtækisins.

Þess má geta að Zeldan fær góðan sess í nýjasta bæklingnum sem kemur út hjá þeim núna í vetur sem og einnig hjá söluaðilum í mörgum löndum. Óteljandi sögur eru til af Zeldunni þar sem hún gerði magnaða hluti þegar ekkert annað virkaði. Ég hef tölvert verið við leiðsögn í gegnum árin og á margar sögurnar þar sem Zeldan gaf veiðimönnum, oftast erlendum, einu fiskana í túrnum. Það staðfestir kannski best ágæti Zeldunnar að saga hennar spurðist út erlendis en ekki hér heima. Og vegna sögusagna um Zelduna erlendis grófu þeir hjá Fulling Mill mig upp og söguna eftir það þekkja flestir.

Deildará, Zelda
Stórlax sem gein yfir Zeldu í Deildará á Sléttu. Mynd Arnar Jón Agnarsson.

En að sögum um Zelduna. Fyrir nokkrum árum hringdi í mig góður maður sem var að fara í Langá ásamt konu sinni og erlendum vinahjónum. Þessi ágæti maður spurði mig hvort einhver möguleiki væri á því að ég gæti aðstoðað erlendu hjónin við veiðarnar. Ég þyrfti engar áhyggjur að hafa af honum og hans konu enda bæði þrælvön og afburða veiðimenn, ég átti bara að einbeita mér að erlendu hjónunum.

Í lok fyrstu vaktar, eða kl.21:30, var ég staddur með þau í Langasjó og hafði ekkert gengið hjá okkur. Ekki vantaði flugurnar til að velja úr hjá þeim, síður en svo. Íslensku hjónin höfðu séð til þess að þau voru vel klyfjuð af flugum og boxum enda ekki alveg ókunnug flugubransanum hérna heima. Þarna hugsaði ég, jæja best að setja Zelduna undir og sjá hvort hún geri enn og aftur fyrir mig það sem hún hafði svo oft gert áður. Ég man ekki í hvaða kasti það var með Zelduna sem laxinn tók en það voru ekki komin 10 köst.

Laxinum var landað og var  það herrann sem fékk hann. Nú var klukkan að nálgast 22:00 svo ég fór með frúna út í. Enn og aftur tók lax Zelduna eftir aðeins örfá köst og var honum einnig landað. Það  voru stolt hjón sem mættu í veiðihúsið eftir vaktina en ég var ekki búinn að geta þess að erlendu hjónin höfðu aldrei snert á veiðistöng um æfina fyrr en í þessum túr. Það fór svo að lokum að erlendu hjónin lönduðu 16 löxum í þessari veiðiferð og þau Íslensku 18 löxum. 12 af þessum 16 komu á Zelduna þrátt fyrir að hafa oft reynt aðrar flugur.

Zelda
Flestar týpurnar hérna samankomnar. Myndin er af FB síðu Zeldu.

Ein saga af honum Róbert Dan frænda mínum frá því í fyrra og svo nú í sumar. Róbert er einn af þeim sem hefur fengið Zelduna hjá mér í gegnum árin og gengið vel með hana. Hann hefur í mörg ár ekki farið til veiða nema vera með Zelduna í boxinu. Í fyrra var hann við veiðar í Laxá Nesi og hafði reynt tölvert. Hann átti eina Zeldu í boxinu en honum hafði láðst að skoða í boxin áður en hann fór til veiða. Róbert setti einu Zelduna sem hann átti undir og mjög fljótlega var kominn lax á. Laxinn stökk einu sinni meðan á viðureigninni stóð og það var enginn tittur heldur klárlega lax sem var 20+ pund. Eftir um 15 mín sleit laxinn og þegar taumendinn var skoðaður var hann tættur í sundur sem bendir til að laxinn hafi tekið Zelduna djúpt og tennurnar sargað tauminn í sundur. En frændi var með nýjan 25 punda taum. Ekki fékk frændi minn högg eftir þetta í ferðinni svo hann kom laxlaus heim. En hann fór svo aftur núna í sumar á sama svæði og landaði einum lax sem einnig tók Zelduna.

En talandi um Laxá. Nattúrubarnið og leiðsögumaðurinn Höskuldur Birkir Erlingsson gerði gott mót með Zeldunni í sumar eins og hann orðaði það sjálfur. Þeir sem þekkja til Höskuldar vita að þar fer afburða veiðimaður og skiptir þá ekki máli hvað er veitt. Höskuldur hefur leiðsagt fólki mikið við Víðidalsá og Laxá í Ásum ásamt öðrum svæðum. Höskuldur hafði eftirfarandi að segja um Zelduna.

„Nú er ég búinn að nota Zelduna af og til við veiðar og leiðsögn í sumar. Hún hefur komið gríðarlega á óvart og er ég búinn að landa fjölmörgum löxum á hana. Nú síðast var ég við veiðar í Aðaldalnum og þar fékk ég þrjá laxa á Zelduna þegar aðrir voru í kroppi. Það hefur komið mér á óvart hvað laxinn er aggressífur á hana og má líkja tökunum við Sunray tökur. Það er tekið fast í og laxarnir yfirleitt vel teknir. Ég er búinn að prófa hana í stærð 12, 14 og 16. Mér finnst 14 gefa best en 16 er snilld í litlum ám. Niðurstaðan, þrælskemmtileg fluga og góð viðbót við fluguflóru Íslands.“

Kjartan sjálfur heldur áfram: „Eitt sinn var ég sjálfur í Laxá í Kjós. Þá var hringt í mig klukkan að verða hálf-tíu um kvöldið og ég beðinn um að koma niður að Kvíslarfossi. Þar var einn af þeim aðilum sem varð að fá fisk við veiðar. Ekkert hafði gengið og hann átti aðeins hálftíma eftir því hann gat ekki veitt síðasta morguninn. Ég lét til leiðast og mætti um hálftíu og hitti hann. Við reyndum nokkrar flugur en ég ákvað að við myndum bara taka 10-15 köst með hverri flugu og svo skipta. Ekkert gekk og rétt fyrir kl.22:00 setti ég Zelduna undir og það var eins og við manninn mælt, laxinn nelgdi og var landað skömmu síðar. Það var glaður erlendur veiðimaður sem hætti veiðum það kvöld. Já það er ótrúlegt hvað einn fiskur getur gert fyrir ánægjustuðulinn hjá veiðifólki og þá sérstaklega í erfiðum aðstæðum. Ég reyndi alltaf að halda Zeldunni leyndri þó að nokkrir aðilar sem ég treysti hér heima hefðu fengið hana hjá mér í mörg ár. Allir segja þeir það sama, að þeir fari ekki ótilneyddir til veiða nema vera með nokkur eintök af Zeldunni í boxinu.

Eins og áður sagði á ég endalausar sögur af Zeldunni en einversstaðar verður að stoppa. Er búinn að fá fjölmarga einkapósta frá veiðimönnum- og konum sem reyndu Zelduna með góðum árangri nú í sumar og þar leynast margar góðar sögur. Ástæðan fyrir leyndarhyggjunni hjá mér er sennilega vegna þess að ég veit hversu megnug Zeldan getur verið í veiði. Hálft í hvoru hafði ég áhyggjur af því að hönnunninni yrði stolið af mér og Zeldan því eignuð öðrum, annað eins hefur jú gerst. En með aðkomu Fulling Mill að Zeldunni hafa þær áhyggjur horfið og ég gæti ekki samglaðst meira þeim veiðimönnum- og konum sem fá fisk á Zelduna. En það má líka bæta því við að sérstaða Zeldunnar felst einnig í því hversu skæð sjóbirtingsfluga hún er og einnig hafa margir urriðar og bleikjur fallið fyrir henni.“