Breyttur Minnivallalækur – Betri Minnivallalækur?

Fyrirsögnin gefur upp spurningu. Fyrir kannski tveimur árum greindum við frá því að eðli Minnivallalækjar hefði breyst mikið. Þegar skrúfað var fyrir frárennsli frá seiðaeldinu við Stöðvarhyl breyttist mikið.

Er „lækurinn“ betri í dag en þá? Það fer eftir því hvernig á það er litið. Minni heillaði marga, raðir af risaurriðum röðuðu sér neðan við frárennslisstútana. Heimastofninn og fullt af gestum ofan úr Þjórsá. Kunnugir þekktu í sundur Minnistofninn og Þjórsárstofninn. Þefvísi laxfiska er rómuð og mögnuð. Þá veiddust þó nokkrir 15 til 20 punda á hverju sumri og margir til viðbótar „stórir“. En svo var skrúfað fyrir. Og allt breyttist.

Það rignir við Minnivallalæk eins og víðar….

Þegar við töluðum um fyrir ca 2 árum að allt væri breytt, bentum við líka á að það væru að eiga sér stað kynslóðaskipti á urriðanum í ánni. Tröllunum fækkaði. Sum svifu eflaust til Þjórsár á ný og önnur drápust úr elli. 15 til 20 punda urriði á ekki marga metra eftir. Heimsókn VoV 2023 einkenndist af nokkrum 30-35 cm fiskum, stærð sem maður hitti varla fyrir á árunum á undan. Þá var slangur af aflanum 45-60 cm, en fáir stærri.

Við höfum ekki kíkt í heimsókn síðan, þangað til núna. Lítið stundað að sögn Þrastar leigutaka hjá Strengjum, innlenndu veiðimennirnir afbókuð sig mikið til þegar stefndi í júníhretið. En fram að því var bara ágæt veiði. Þegar talað er um ágæta veiði í Minnivallalæk þá er það ekki talið í mörgum fiskum. Færri og stærri er normið. En eftir að urriðar í ánni hættu að geta étið sælgætið frá stöðinni, varð hún en „tæknilegri. Straumflugur gefa enn dálítið, andstreymisveiði með púpum er enn betri og sem betur fer kunna margir heimamenn þá iðju. PT er sérstaklega vinsæl og mikið tekin (af veiðimönnum og urriðum), en svo koma útlendingarnir og veiða á þurrflugu og finnst Minni vera Paradís.

En veiðin 2025, það sem af er. Nokkrir tugir fiska og svakaleg meðalstærð. Unga kynslóðin að vaxa úr grasi og holdafarið þess eðlis að áin sjálf stendur vel undir stofni sínum. Þegar VoV kom í heimsókn á þriðjudaginn voru 8 síðustu skráningarnar í veiðibókinni 60 til 69 cm. Allt undir 50 cm bara tittir og fáir svoleiðis. Við lönduðum þremur á stuttu stoppi, 70, 52 og 50 cm…sem sagt tveimur tittum. En þeir voru minnistæðir, tittirnir, því urriðinn var ekki að líta við neinu í Stöðvarhyl seinna kvöldið. Þá kom músapælingin. En ekki var til mús í boxunum, það næsta því sem líktist mús var risastór fljótandi Muddler. Og allt varð brjálað. Um tíma, elt og boðar í hverju kasti….“músin“ skautandi í yfirborðinu. Tveir dembdu sér og var landað. Stórfengleg minning. Ein sú besta í mörg ár.

Betri eða lakari í dag? Okkar niðurstaða á VoV er: Betri. Miklu betri. Áin er sjálfbær, krefjandi og setjir þú í fisk eru meiri líkur en minni að það verði stór andskoti sem fer í minningabankann. Takk fyrir Minnivallalæk.