Það er kropp hér og þar

Styrmir Elí Ingólfsson og Erik Koberling með einn flottan úr Kjarrá.

Jæja, það er eitthvað í gangi. Kjarrá opnuð og þar komu nokkrir fiskar á land. Þá verður líflegra með  hverjum deginum í Elliðaánum þó enn sé veiði þar ekki hafin.

Bústin hrygna í Elliðaárkistunni í gær.

Kjarrá er alltaf líkleg til að gefa nokkra í opnun, enda er Þverár/Kjarrárkerfið með snemmgenginn stofn og fáar ef nokkrar fyrirstöður. Eins má greina frá því að Ásgeir Heiðar birti í gær mynd úr teljarakistu Elliðaána, sem staðsett er við rafstöðvarhúsin. Þar gat að líta fyrsta laxinn til að fara í gegn um teljarann. Afskaplega vel haldin hrygna. Hann nefndi í leiðinni að fjórir nýgengnir hefðu verið á Breiðunni á sama tíma. Þetta fer ef til vill skánandi með hverjum deginum sem líður.