Ekki vantar sverleikann, fiskur í Grænavatni greinilega í góður fæðumálum.
Enn berast fregnir af Veiðivötnum á Landmannaafrétti. Stangaveiði lauk þar að vísu 19.ágúst en hefð hefur verið fyrir netaveiðum bænda fram í september. Gjarnan er þá eitthvað veitt á stöng líka, en veiðitölur þessar koma ekki fram í lokaveiðiskýrslum hjá veidivotn.is. Þar veiddist nú tröll af urriða, einn sá stærsti í sumar.
Það var sá mikli silungaskaðvaldur Örn Hjálmarsson, kenndur við Útilíf, sem dró ferlíkið í Grænavatni. Urriðinn vóg 5,4 kíló, eða tæp 11 pund. Stærsti fiskur stangaveiðitímans veiddist einnig í grænavatni, sá var veginn, afar nákvæmlega, 13,56 pund. Annars var heildarveiðin í Veiðivötnum að þessu sinni 17570 fiskar, 7936 urriðar og 9634 bleikjur. Þetta var ekki með betri sumrum þar efra þótt mörg ógleymanleg veiðisagan hafi fæðst þar sumarið 2020.
Mikið er enn af sjóbirtingi í fallvötnum Vestur Skaftafellssýslu. Veður hefur sett strik í reikninginn en þegar menn hafa stundað veiðiskapinn hefur ekki staðið...