Stóra Laxá virðist heldur betur vera dottin í gang og eflaust er rigningunni um helgina það helst að þakka, enda hækkaði í henni umtalsvert og við þau skilyrði á haustin er oftast best að hitta Stóru. Hópur sem nú er í ánni og er búinn að veiða þrjár vaktir, var kominn með 24 landaða í kvöld og all margir höfðu hrist sig af.


„Hér eru brjálæðislega góð skilyrði og laxa bara um allt“ sagði Kári Ársælsson í samtali við VoV í kvöld. Hann deilir tveimur stöngum með bræðrunum Ellert og Vigni Svavarssonum, en leiðsögumenn úr Ytri Rangá eru með stangirnar á móti þeim. Vel hefur aflast hjá öllum og þá hafa einhverjir sjóbirtingar líka verið að slæpast með. „Það eru komnir nokkrir yfir 80 cm og okkar stærstu eru 83 og 87 cm. Restin er alveg frá 50 og uppí 70 cm,“ bætti Kári við.


Menn höfðu nú haft talsverðar áhyggjur af haustvertíðinni í Stóru Laxá vegna þess hversu slök veiðin hefur verið á öllu Hvítár/Ölfusársvæðinu í sumar. En augljóslega leynir svæðið á sér og líkt og Kári sagði, „lax útum all“. Áin er fræg fyrir risaskot í september og verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu, nú þegar skilyrðin eru fyrir hendi.










