Núna geta bara allir farið í Þingvallavatn og reynt við hina víðfrægu urriða þökk sé því að opnað hefur verið fyrir fleiri svæði heldur en hin frægu “ION”-svæði. En hvernig á að bera sig að við þessa höfðingja sem vaða út með alla línuna og slíta? Við bárum það undir einn snjallasta Þingvallavatnsmanninn….
Það er enginn annar en Nils Folmer Jörgensen sem að leiðir lesendur inn í þennan heim sem að fleiri geta nú bætt sér inn í. Nils hefur aðallega veitt á ION-svæðunum, en einnig víðar í vatninu og hann hefur landað þeim mörgum og stórum, eitt sinn m.a. tveimur vel yfir tuttugu pundunum á sama kvöldinu. Nils var til í að miðla af reynslu sinni:
„Það hafa birst margar myndir af mér með stóra urriða úr Þingvallavatni og það verður að taka strax fram að flestar hafa þær verið teknar á ION-svæðunum sem eru gjöfulustu urriðasvæði vatnsins. Þar er mest af urriðanum, en aðferðafræðin er auk þess breytileg. Á þessums væðum notum við mest léttan búnað þar sem veiðin er mest á púpur og þurrflugur. En ég hef einnig veitt vel víðar í vatninu þannig að aðferðafræðin, svona heilt yfir litið, er þessi:
ION-svæðin. Þar er ég næstum eingöngu með stangir fyrir línu 6. Hef eina hraða fyrir straumfluguveiði á vindasömum dögum. Síðan aðra svona meðalhraða fyrir púpurnar og þurrflugurnar. Ástæðan mýkri stönginni er sú að ég fer alveg niður í 0.20 tauma, sem eru of gjarnir að slitna í stórum fiski ef að stöngin er of stíf. Sama gildir um smáu önglana á smærri flugunum. Urriðarnir hafa krafta á við frægustu saltvatnstegundir í Suðurhöfum!
Línur og flugnavalið
Ég er ætíð með flotlínur þar sem fiskurinn er oftast á sveimi í og rétt neðan við vatnsborðið. Að vera með sökkvandi línur við þær aðstæður tryggir að línan og flugan fara undir fiskana, sem getur sannarlega styggt þá.
Bestu flugurnar samkvæmt minni reynslu eru svört og Olive Klinkhammer og Black Gnat þurrflugur. Bestur púpurnar eru Hares Ear og Phesant tail og nota ég bæði þyngdar og óþyngdar. Stærðir 12 til 16. Besta straumflugan er án vafa Olive Ghost og þurfa menn að vera vopnaðir bæði þyngdum og óþyngdum, þær þyngdu eru þá til notkunar þar sem dýpi er mikið og eins í miklum vindi.
Á öðrum svæðum í vatninu nota ég oftast intermediate línur og fara þá jafnvel upp í stangir fyrir línu 7 þegar veitt er með þyngdum straumflugum í miklum vindi.











