Vikutölurnar eru komnar og þetta er sem áður svart og hvítt. Það sem virðist liggja hvað mest fyrir er að Vestur Húnavatnssýsla hefur farið varhluta af smálaxagöngum á meðan að þær hafa verið þokkalegar til góðar víðast hvar annars staðar. Skoðum nú tölurnar hjá angling.is
Förum yfrir þessar tölur í þeirri röð sem þær birtast á angling.is, hæsta talan fyrst, síðan koll af kolli. Fyrst er heildartala þessa sumars til þessa, , þá vikutalan og í sviganum sambærileg tala frá síðasta sumri:
Þverá/Kjarrá 1975 – 158 (1393)
Ytri Rangá 1512 – 398 (2287)
Miðfjarðará 1422 – 374 (1852)
Eystri Rangá 1367 – 297 (672)
Norðurá 1352 – 121 (1175)
Haffjarðará 1075 – 127 (808)
Urriðafoss 1038 -83 (656)
Langá 1003 – 160 (963)
Blanda 771 – 103 (1074)
Selá 706 – 214 (525)
Elliðaárnar 684 – 118 (647)
Laxá í Kjós 667 – 116 (471)
Grímsá 637 – 61 (687)
Laxá í Dölum 562 – 137 (247)
Laxá í Leirársv. 459 – 86 (334)
Laxá í Aðaldal 415 – 65 (444)
Haukadalsá 412 – 65 (257)
Laxá á Ásum 402 – 67 (536)
Hofsá 384 – 104 (273)
Hítará 369 – 32 (291)
Víðidalsá 309 – 77 (444)
Brenna/Hvítá 306 – 36 (209)
Jökla 303 – 103 (165)
Vatnsdalsá 244 – 31 (369)
Straumfjarðará 218 – 73 (196)
Miðá 185 – 26 (185)
Þverá Fljótshl. 177 – 82 (120)
Búðardalsá 172 – 28 (123)
Svo sem sjá má þá eru margar betri en á sama tíma í fyrra, aðrar lakari og enn aðrar varla með marktækan mun á milli ára. Eftirtektarvert er siglingin á Þverá/Kjarrá og merkilegt að á þessu stigi vertíðar sé ein af sjálfbæru ánum enn í efsta sætinu. Þó að líklegt sé að Ytri taki framúr á einhverjum tímapunkti þá er þetta eigi að síður mögnuð frammistaða. Þótt vikutalan í Ytri sé flott þá er áin þó mun lægri en á sama tíma í fyrra, en Eystri Rangá að sama skapi miklu betri nú en þá og hefur dagsveiðin í hennni hlaupið upp í 147 laxa þegar best hefur látið.
Átta ár eru komnar í fjögurra stafa tölu og í raun er í einu tilvikinu aeðins um afmarkað svæði að ræða, Urriðafoss í Þjórsá þar sem veiðin hefur verið með ólíkindum.
Ýmsar þekktar ár í Húnavatnssýslu vestari eru með talsvert lakari tölur en í fyrra og mikið talað um smálaxabrest í því samhengi. Jóhann Rafnsson umsjónarmaður við Víðidalsá sagði þetta: „Það er búið að vera ágætt undanfarna daga. 15 laxar á dag, mest nýr smálax en heildartölur í sumar frekar lágar. Hollið sem er núna er komið með 51 eftir 3,5 daga. Þetta er slök heildartala 320 laxar, það er mjög lítið af tveggja ára laxi. En veiðin undanfarið batnandi og mest smálax.“










