89 cm birtingurinn hans Ásgeirs Ólafssonar er ekki sá stærsti sem við höfum haft spurnir af, en ferlegt tröll engu að síður. Við heyrðum í Ásgeiri og fengum söguna, en fiskurinn var halaður uppúr Geirlandsá.
Svona sagði Ásgeir frá: „Það er engin sérstök saga á bak við þetta. Fyrsta vaktin okkar var eftir hádegi á mánudag. Þá var áin óveiðandi vegna vatnavaxta. Morguninn eftir var áin orðin algjörlega tær en vatnsmikil. Var búinn að kasta í sirka 15 mín í Ármótunum án þess að verða var þegar þessi fiskur tók. Hann stökk um leið mjög hátt og tók eina dúndur roku en eftir það þá var hann bara í því að þumbast. Sé mest eftir því að hafa ekki sleppt honum. Mín stefna í sjóbirting og sjóbleikju hefur verið sú i mörg ár að hirða nýlega fiskinn en sleppa þeim fiskum sem eru komnir í hrygningarklæðin. Þetta var bjartur fiskur og sá fyrsti í þessum túr og því ákvað ég að taka hann í reyk. Ef ég hefði vitað að 4 aðrir fiskar (3-6pund) myndu fylgja á eftir þeim stóra eins og raunin varð, þá hefði ég gert þetta öðruvísi og látið hann fara.“
Menn geta velt fyrir sér þyngd svona fisks. Það fer auðvitað etfir holdafari en af myndinni að dæma þá er þetta afar þykkur fiskur. VoV þekkir nokkur dæmi um að 86-87 cm birtingar séu á bilinu 16 til 18,5 pund. Þetta gæti samkvæmt því verið tuttugu pundari!












